Tímaspursmál hvenær sjókvíaeldi útrýmir villta laxinum Elvar Örn Friðriksson skrifar 12. júlí 2023 07:00 Hafrannsóknarstofnun gaf nýverið út skýrslu sem sýndi fram á það án nokkurs vafa að sjókvíaeldið hefur stofnað íslenska laxastofninum í mikla hættu. Ef miðað er við niðurstöður stofnunarinnar má ætla að hnitmiðuð árás hafi verið gerð á villta laxinn og heimkynni hans. Tilgangurinn var mögulega sá að skapa rými fyrir frjóann norskann eldislax og réttlætingin hefur verið atvinnusköpun og útflutningstekjur. Sorglegar niðurstöður skýrslunnar fjalla um erfðablöndun vegna strokulaxa úr sjókvíaeldi. Sú erfðablöndun er sannanlega hafin í íslenskum ám og mun hafa versnað til muna næst þegar erfðablöndunin verður könnuð því tölurnar nú eiga við um skaða sem varð af margfalt minna sjókvíaeldi en nú er stundað. Af hverju er erfðablöndun hættuleg fyrir villta laxinn? Það er eðlilegt að fólk spyrji sig af hverju erfðablöndun er villtum laxi hættuleg, þ.e. fyrir utan hið augljósa að hreinleiki stofnsins hafi þegar skaðast. Talsmenn sjókvíaeldis halda því á lofti að erfðablöndun muni ekki skaða villta laxinn, og að náttúruverndarsinnar eigi bara að hætta þessu væli. Raunin er hins vegar sú að sjókvíaeldi er stærsta ógnin við villta laxastofna. Laxastofnar í öðrum löndum eru orðnir mikið erfðablandaðir og eru þeir því miður að fjara út. Erfðablöndun á sér stað þegar eldislax sleppur úr sjókví, finnur sér á til að synda upp í og hrygnir svo með villtu löxunum í þeirri á. Munurinn á villta laxinum og eldislaxinum er mikill. Sá villti hefur aðlagast aðstæðum á Íslandi og í sinni heima-á síðan á síðustu ísöld. Þeirra eðli er að lifa af í náttúrunni, synda þvert yfir atlantshafið, koma svo aftur í sína heima-á og fjölga sér svo að hringrásin geti endurtekið sig. Eldislaxinn er hins vegar húsdýr sem hefur verið erfðabætt í nær fimm áratugi, með það eina markmið að stækka og fitna sem hraðast, svo að hann komist sem allra fyrst á disk neytenda. Samt sem áður hefur þetta húsdýr sama eðli og villti laxinn, þ.e. að hrygna og fjölga sér. Þegar villti laxinn og eldislaxinn eignast afkvæmi er því verið að draga úr hæfni afkvæmisins til að lifa af í sínu náttúrulega umhverfi. Þetta gerist síðan aftur og aftur, erfðaefnið þynnist út og á endanum munu afkvæmin einfaldlega ekki vera hæf til þess að viðhalda stofninum. Þetta er nokkuð sem talsmenn sjókvíaeldis hafa haldið ranglega fram að verði ekki vandamál. Það er einfaldlega vísvitandi lygi og það þarf ekki að horfa lengra en til Noregs til sjá það. 70% laxastofna þar eru nú erfðablandaðir og færri og færri laxar koma til baka í árnar. Á heimsvísu hefur Atlantshafslaxi fækkað um 70% á síðastliðnum 40 árum. Spurningin er því einfaldlega: Viljum við hækka það upp í 100% ? Viljum við vera kynslóðin sem útrýmdi villta laxinum fyrir ofsagróða norskra sjókvíaeldisfyrirtækja? Myndum við leyfa frjóum erlendum hestum til manneldis að hlaupa hér um grundir á meðal íslenska hestsins? Samkvæmt skoðanakönnunum segir þjóðin nei við sjókvíaeldi og þar með þessum spurningum. Eldið margfalt í dag miðað við fyrir nokkrum árum Í rannsókn Hafrannsóknarstofnunar voru tæplega 6.500 laxaseiði rannsökuð og tekin úr þeim erfðasýni, en meðal framleiðsla í sjókvíaeldi á Íslandi á þeim tíma sem sýnin voru tekin var um 6.900 tonn. Framleiðslan í dag er um 43.000 tonn og stendur til að auka hana til muna. Það má því áætla að staðan sé mun verri í dag eins og áður segir, þar sem að sýnin í rannsókninni eru ekki ný. Erfðablöndun mælist í 4,3% sýna og erfðablöndun greindist í nokkrum af merkustu laxveiðiám landsins. T.d. Víðidalsá, Hofsá og Laxá í Aðaldal, allt að 250km frá sjókvíum. Sem dæmi má nefna að Arnarlax missti meira en 80,000 eldislaxa úr kví árið 2021 og gerir ágreining vegna sektar sem þeim var gert að greiða vegna þess. Allir þeir eldislaxar og afkvæmi þeirra eru ekki með í þessari rannsókn sem nú var birt. Talsmenn sjókvíaeldis hafa staðfastlega haldið því fram að laxinn sem sleppi fari ekki langt og hægt sé að 10-12 falda sjókvíaeldi í sátt og samlyndi við náttúru og villtan lax. Þó án þess að sýna fram á nein rök eða gögn sem styðja það. Hvernig er hægt að halda þessu fram? Hér fyrir neðan má sjá kort síðan 2016 sem sýndi útbreiðslu regnbogasilungs sem sloppið hafði úr sjókvíaeldi. Fiskar eru með sporð og þeir synda þangað sem þeir ætla sér. Þeir virða engin fjarlægðarmörk eða takmarkanir mannanna. Staðan er einföld. Við þurfum að hætta að slá ryki í augun á fólki og tala hreint út. Sjókvíaeldi er úrelt og mengandi starfsemi sem mun valda því að villtur lax deyr út. Sjókvíaeldi er arðbærasta og ódýrasta leiðin (fyrir fyrirtækin) til að framleiða lax, þess vegna halda talsmenn þessa iðnaðar því fram að allt sé í góðu. Það er einfaldlega ekki hægt að stunda þennan iðnað í sátt og samlyndi við náttúru. Það hefur verið reynt í mörgum löndum, og hvergi hefur það tekist. Sjókvíeldi i opnum kvíum á frjóum fiski á Íslandi er dauðadæmt vegna þessa. Stjórnarsáttmáinn: Verður staðið við hann? Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar er eftirfarandi haldið fram: „Mótuð verður heildstæð stefna um uppbyggingu, umgjörð og gjaldtöku fiskeldis. Við þá vinnu verður lögð áhersla á tækifæri til atvinnusköpunar og mikilvægi þess að greinin byggist upp á grundvelli sjálfbærni, vísindalegrar þekkingar og verndar villtra laxastofna“. Vísindin tala sínu máli. Þetta gengur ekki upp....Erfðablöndun hefur átt sér stað, mun aukast og nú þegar eru villtir stofnar farnir að líða fyrir það. Sjálfbærni er hugtak sem sjókvíaeldisfyrirtæki skreyta sig með til þess að selja vöru sína, en starfsemin er að þurrka út villtan lax. Það er augljóslega ekki sjálfbært og ber fremur að skilja slíkar yfirlýsingar sem vísbendingu um óheilindi þessa iðnaðar. Verndun villtra laxastofna er setning sem lítur vel út á blaði, en ef það er virkilega ætlun þessarar ríkisstjórnar, verður að grípa strax í taumana og hætta þessari starfsemi. Það er búið að reyna þetta annars staðar, hluthafar græða en náttúran tapar. Það er svoleiðis þar og hér og alls staðar þar sem þessi starfsemi er stunduð. Hættum að slá ryki í augun á fólki og gerum það sem er rétt í stöðunni. Það sem er rétt fyrir náttúruna, það sem er rétt fyrir komandi kynslóðir og það sem er rétt fyrir konung fiskanna, villta laxinn. Hættum að stunda sjókvíaeldi áður en það verður of seint og villti laxinn fer sömu leið og Geirfuglinn. Höfundur er framkvæmdastjóri Verndarsjóðs Villtra Laxastofna, (NASF). Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sjókvíaeldi Fiskeldi Elvar Örn Friðriksson Mest lesið Þegar móðir mín kvaddi okkur fyrir einu ári síðan í dag Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun Álit Einhverfupaunksins um ABA meðferð og kennslu á Íslandi Sigrún Ósk Stefánsdóttir Skoðun Ýmislegt um rafmagnsbíla og reiðhjól Valur Elli Valsson Skoðun Mammon hefur náð lífeyrissjóðum á sitt band Halla Signý Kristjánsdóttir Skoðun Þessi stórskrítnu norm í óbarnvænu samfélagi Sólveig María Svavarsdóttir Skoðun Um vaxtahækkanir og verð á hveiti Haukur Skúlason Skoðun „Við höfðum öll rangt fyrir okkur“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Öryggi byggir á mönnun og launum Jórunn Frímannsdóttir Skoðun Umhyggja - hvað er það? Árný Ingvarsdóttir Skoðun Forgangsorkan verður ekki skert Tinna Traustadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kenningar úr gildi svo að kirkjan þarf að komast á annað stig Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Dansaðu vindur Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þessi stórskrítnu norm í óbarnvænu samfélagi Sólveig María Svavarsdóttir skrifar Skoðun Um vaxtahækkanir og verð á hveiti Haukur Skúlason skrifar Skoðun Öryggi byggir á mönnun og launum Jórunn Frímannsdóttir skrifar Skoðun Álit Einhverfupaunksins um ABA meðferð og kennslu á Íslandi Sigrún Ósk Stefánsdóttir skrifar Skoðun Mammon hefur náð lífeyrissjóðum á sitt band Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Forgangsorkan verður ekki skert Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Umhyggja - hvað er það? Árný Ingvarsdóttir skrifar Skoðun „Við höfðum öll rangt fyrir okkur“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Akureyrarbær greiðir götu kvennaathvarfs á Akureyri eins og kostur er Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Þegar móðir mín kvaddi okkur fyrir einu ári síðan í dag Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar Skoðun Íþróttahreyfingin og gerviverktaka Ástþór Jón Ragnheiðarson skrifar Skoðun Tölum um tilfinningar Amanda Ásdís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Óttinn við íslensku rafkrónuna Birna Guðný Björnsdóttir skrifar Skoðun Áskorun til Sjúkratrygginga Íslands – hugsum í lausnum Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Afnemum launamisrétti Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Hvað hefur Ísland gert? Katla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Viðhorf almennings og neytenda til sjálfbærnimála fyrirtækja og stofnana skiptir miklu máli Soffía Sigurgeirsdóttir,Trausti Haraldsson skrifar Skoðun Ýmislegt um rafmagnsbíla og reiðhjól Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Taugatýpísk forréttindi Mamiko Dís Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Hver er ég og hvert er ég að fara? Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Þeir borga sem nota! Tómas Kristjánsson skrifar Skoðun Að hjálpa fólki að standa á eigin fótum Jón Þór Kristjánsson skrifar Skoðun Samkennd samfélags Guðrún Karls Helgudóttir skrifar Skoðun „Heimferða- og fylgdadeild“ Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Til varnar mennsku kúgarans Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Þegar ómennskan vitnar í lög Bubbi Morthens skrifar Skoðun Engum til sóma Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Góðan daginn, ég ætla að fá … ENGLISH PLEASE! Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Álit Einhverfupaunksins um ABA meðferð og kennslu á Íslandi Sigrún Ósk Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Akureyrarbær greiðir götu kvennaathvarfs á Akureyri eins og kostur er Ásthildur Sturludóttir skrifar
Skoðun Viðhorf almennings og neytenda til sjálfbærnimála fyrirtækja og stofnana skiptir miklu máli Soffía Sigurgeirsdóttir,Trausti Haraldsson skrifar