Silja Mist tekur við markaðssviði N1 Máni Snær Þorláksson skrifar 14. ágúst 2023 10:28 Silja Mist Sigurkarlsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðssviðs N1 Aðsend Silja Mist Sigurkarlsdóttir er nýr forstöðumaður markaðssviðs N1. Hlutverk Silju verður að leiða markaðsstarf N1, taka þátt í stefnumótun félagsins og hafa yfirumsjón með samfélagsstefnu þess.
Silja Mist útskrifaðist með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði með lögfræði sem aukagrein frá Háskólanum í Reykjavík. Áður hefur hún starfað sem markaðsstjóri Orku Náttúrunnar og Nóa Siríus en þar var hún einnig vöruþróunarstjóri. Auk þess situr hún í stjórn sælgætisgerðarinnar Freyju. Að því er fram kemur í tilkynningu mun Silja Mist fara fyrir markaðsdeild N1 og bera höfuðábyrgð á auglýsingum og öðru kynningarefni. Þá mun hún einnig hafa samfélagsmál félagsins á sinni könnun. „Við hjá N1 teljum okkur heppin að hafa fengið Silju Mist til starfa,“ er haft eftir Ými Erni Finnbogasyni, framkvæmdastjóra N1, í tilkynningunni. N1 fái nú að njóta góðs af víðtækri reynslu hennar. Ýmir segir þá að N1 sé í umbreytingarferli og að mikilvægt sé að vörumerkið þróist í takt við þær breytingar sem eru framundan. „Við erum sannfærð um að Silja Mist sé rétta manneskjan í verkið og hlökkum til samstarfsins.“ Þá segir Silja Mist að það verði skemmtileg áskorun að reyna að höfða til allra þeirra fjölbreyttu hópa sem nýta sér þjónustu félagsins. „Þá hlakka ég mjög til samstarfsins við öll þau ótal félög og samtök sem N1 styrkir árlega með það fyrir augum að gera samfélagið betra, heilbrigðara og farsælla.“
Vistaskipti Bensín og olía Auglýsinga- og markaðsmál Festi Mest lesið Ný verslun nærri þúsund fermetrum stærri en sú gamla Neytendur Melabúðarbræður með hálfan milljarð í fyrra Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri Smáríkisins ákærður Viðskipti innlent Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent Skattakóngurinn flytur úr landi Viðskipti innlent Samherjahjónin fyrrverandi langtekjuhæst Viðskipti innlent Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Viðskipti innlent Tuttugu tonn af íþróttanammi á sextíu dögum Neytendur Keyra á orkudrykkjamarkaðinn Viðskipti innlent Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Neytendur Fleiri fréttir Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Melabúðarbræður með hálfan milljarð í fyrra Framkvæmdastjóri Smáríkisins ákærður Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna á mánudaginn Samherjahjónin fyrrverandi langtekjuhæst Kannast ekki við „lífróður“ Heimildarinnar sem fækkar útgáfudögum Skattakóngurinn flytur úr landi Setja tvo milljarða til í fiskeldið sem tapar hundruðum milljóna „Framboð á markaði er ekki það sem neytendur vilja kaupa“ Móðurfélag útgefanda Moggans tapaði hundruðum milljóna Segir háa stýrivexti bitna á ákveðnum hópi og boðar aðhald í fjárlagafrumvarpi Keyra á orkudrykkjamarkaðinn Kaupa Gompute „Ég bið almenning að hafa þolinmæði með okkur“ Ósáttir með ákvörðun peningastefnunefndar Muni ekki hika við að hækka vexti Sektað fyrir að auglýsa of mikið fyrir Áramótaskaupið Kristján og Leó kaupa fyrrverandi höfuðstöðvar Landsvirkjunar Endurbættur Kaffivagn opnar aftur í dag Gleðiefni að fjármálaráðherri tali um aðhald í ríkisfjármálum Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðunina Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin til Fossa fjárfestingarbanka Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Herra Hnetusmjör tekjuhæstur í Iceguys Sante fer í hart við Heinemann Davíð trónir enn og aftur á toppnum Runólfur á toppi tekjulistans yfir launahæstu embættismennina og forstjórana Ólafur Ragnar með rúma milljón meira en næsti maður Sjá meira
Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent
Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent