Innlent

Meintur svikahrappur hafi lofað kynlífi og beðið um pening

Jón Þór Stefánsson skrifar
Konan segist haldin alvarlegri spilafíkn.
Konan segist haldin alvarlegri spilafíkn. Vísir/Vilhelm

Kona sem er grunuð um að hafa svikið 25 milljónir af ellefu karlmönnum, þar af nokkrum með þroskaskerðingu er laus úr haldi. Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir henni frá því í byrjun mánaðar rann út í dag.

Úrskurður Landsréttar var birtur á vef dómstólsins í dag. Í gögnum málsins segir að hún hafi veitt einum manni loforð um kynlíf í sömu andrá og hún bað hann um 50 þúsund krónur.

Lögreglan telur hana hafa ítrekað beitt blekkingum, hagnýtt sér óljósar hugmyndir manna og þannig haft af þeim fé. Hún hafi blekkt menn með því að óska eftir láni þegar henni hafi verið ljóst að hún gæti ekki borgað þau til baka.

Konan, sem hefur játað brotin að hluta til, segist haldin alvarlegri spilafíkn og að hún leiti nú aðstoðar vegna vanda síns. Á síðustu tveimur árum hafa 400 karlmenn lagt inn á hana rúmlega 200 milljónir.

Í febrúar á þessu ári var konan handtekin og spurð út í meint fjársvik sín og færslur frá fjórum kærendum. Um var að ræða um það bil fimmtán milljónir, en konan hélt því fram að um væri að ræða lán sem hún ætlaði sér að borga til baka.

Þrátt fyrir það hélt konan uppteknum hætti, en tíu karlmenn hafa kært hana til viðbótar, og þar af eru fjórir með þroskaskerðingu. Hún hefur haldið því fram að hún eigi von á arfi sem hún muni borga skuldir sínar með.

Konan var handtekin á ný í sumar og úrskurðuð í gæsluvarðhald, sem var síðan framlengt og rann að lokum út í dag. Samkvæmt heimildum Vísis var gæsluvarðhaldið ekki framlengt enn frekar og er konan því laus úr haldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×