Dagskráin hefst klukkan hálf tíu í fyrramálið með setningarathöfn þar sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Steiney Skúladóttir leikkona og fleiri munu flytja svokallaða lýðræðisgusu - eða setningarræðu.
„Við byrjum daginn á lýðræðishátíð fyrir unga fólkið, fyrir grunnskólanema og svo höldum við áfram alveg fram í lok dags á laugardag,“ segir Ingibjörg Gréta Gísladóttir verkefnastjóri fundarins. Dagskrána má sjá á heimasíðu fundarins en hann er opinn öllum og ekkert kostar inn á viðburði og fjölbreyttar málstofur.
„Allt frá því að tala um gervigreind og hvort gervigreind geti sagt fréttir, dánaraðstoð, líknarmeðferð, tækni og tungumálið, ferðaþjónustu, samfélagið og lagalegir brestir. Hvað við getum getum gert í þeim málum. Það er mjög, mjög mikið í gangi á fundi fólksins um helgina.“
Ingibjörg segir fundinum ætlað að stuðla að lýðræðislegri umræðu.
„Það er bara að bjóða fólki að koma, félagasamtökum, stjórnmálafólki og öðrum að koma og tala saman á óháðum grundvelli um þau málefni sem liggja þeim næst.“
Þetta er í áttunda sinn sem blásið er til fundarins hér á landi en hann er að norrænni fyrirmynd og Ingibjörg vonar að hann sé orðinn fastur liður í þjóðfélaginu.
„Við vonandi getum haldið þetta áfram eins og til dæmis Svíar sem byrjuðu 1968 þegar Olof Palme steig á stokk og fór að tala um pólitík í sumarfríinu sínu. Við erum ekki þar en vonandi að komast þangað,“ segir Ingibjörg Gréta Gísladóttir verkefnastjóri Fundar fólksins.