Annar sigur Chelsea kom gegn Fulham Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. október 2023 21:15 Chelsea vann loks leik. EPA-EFE/DAVID CLIFF Chelsea vann í kvöld sinn annan sigur í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið sótti Fulham heim í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur í Kotinu, Craven Cottage, 0-2 og vonast lærisveinar Mauricio Pochettino til þess að hafa snúið blaðinu við. Það tók gestina átján mínútur að brjóta ísinn en þá skoraði Úkraínumaðurinn Mykhailo Mudryk sitt fyrsta mark fyrir félagið. Aðeins mínútu síðar tvöfaldaði Armando Broja forystu gestanna og þar við sat, lokatölur 0-2. Heimamenn sóttu vissulega töluvert og sköpuðu sér þónokkur færi en inn vildi boltinn ekki og gestirnir lönduðu sínum öðru sigri á tímabilinu. Chelsea win their first Premier League game since August 25 pic.twitter.com/Di9cBxxaNb— B/R Football (@brfootball) October 2, 2023 Chelsea lyftir sér upp í 11. sæti með átta stig að loknum sjö leikjum á meðan Fulham er í 13. sæti með jafn mörg stig en lakari markatölu. Enski boltinn Fótbolti