Innlent

Mót­mæltu sjó­kvía­eldi með því að dreifa „lúsa­eitri“ yfir Austur­völl

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Gjörningur í lok mótmælanna.
Gjörningur í lok mótmælanna. Vísir/Helena

Mótmæli gegn sjókvíaeldi fóru fram á Austurvelli í dag. Eflt var til óvenjulegs gjörnings að mótmælunum loknum þegar „lúsaeitri“ var hellt yfir Austurvöll og yfir dauða fiska við Alþingishúsið. 

Í tilkynningu segir að bændur og landeigendur muni keyra alls staðar af á landinu og fylkja liði niður á Austurvöll. Gengið verður frá bílastæði Háskóla Íslands að Austurvelli þar sem mótmælin fara fram.

Árni Pétur Hilmarsson veiðimaður og Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur munu ávarpa fundinn. Þá mun Bubbi Morthens taka lagið. 

Bubbi hóf fundinn á að spila tvö lög. Inga Lind Karlsdóttir stýrði fundinum og tók til máls. 

Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur tók til máls. „Vér mótmælum öll!“ sagði Jóhannes í ræðu sinni við mikinn fögnuð.

Þegar Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra tók til máls tóku sumir fundarmenn upp á því að púa á hann. 

Í viðtali við fréttamann að ræðu lokinni sagði hann sjókvíaeldin ekki vera mál á hans borði, en játaði í leið að um alvarlegt mál væri að ræða, og vísaði til ætlaðs brots Artic Sea Farm.

Undir lok fundarins gaf Inga Lind mótmælendum þau fyrirmæli að hella „lúsaeitri“ yfir Austurvöll úr flöskum sem skipuleggjendur höfðu raðað upp við sviðið.  

Vel viðrar til mótmæla. Vísir/Helena
Bubbi tók lagið.Vísir/Helena
Inga Lind Karlsdóttir fór með ræðu. Vísir/Helena
„Helvítis fokking húskarlar Norðmanna.“Vísir/Helena
„Eitrinu“ hellt yfir grasið.Vísir/Helena
Margt var um manninn á Austurvelli.Vísir/Helena
Ungir sem aldnir létu sá sig.Vísir/Helena
Fiskunum var stillt upp fyrir framan Alþingishúsið. Vísir/Ívar Fannar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×