Wembanyama skoraði 38 stig í leiknum og var líka mjög öflugur í lokin þegar það virtist sem að Spurs liðið væri að henda frá sér sigrinum.
Wembanyama skoraði tíu stig á síðustu fjórum mínútum leiksins en allt Suns liðið skoraði bara fimm stig á sama tíma.
EVERY HIGHLIGHT from Victor Wembanyama's dominant night in the Spurs' W
— NBA (@NBA) November 3, 2023
38 PTS (career-high)
10 REB
2 BLK pic.twitter.com/E7FXwDlX9A
„Hann er fjölhæfur leikmaður og hann mun líka gefa boltann á opna manninn. Hann hefur trú á sjálfum sér. Hann gerði nokkrum sinnum ótrúlega hluti í þessum leik. Þessi blanda er skrambi góð,“ sagði Gregg Popovich, þjálfari San Antonio Spurs.
Wembanyama nýtti 15 af 26 skotum sínum þar af 3 af 6 fyrir utan þriggja stiga línuna. Hann var einnig með 10 fráköst, 2 stoðsendingar og 2 varin skot. Liðið vann með 21 stigi þegar hann var inn á gólfinu.
Leikurinn varð óvænt spennandi í lokin eftir endurkomu Suns. Phoenix menn höfðu þá unnið upp 27 stiga forskot Spurs og náð að jafna leikinn þegar 4:21 voru eftir af klukkunni. San Antonio svaraði með því að skora næstu tólf stig og þar af komu tíu þeirra frá Wembanyama.
Mikið hefur verið látið með Wembanyama enda þykir hann einn mest spennandi nýliði síðan að LeBron James kom inn í deildina á sínum tíma. Þetta var aðeins hans fimmti leikur í deildinni og hann var með 16,3 stig að meðaltali í hinum fjórum.
"He's a multifaceted player."
— NBA (@NBA) November 3, 2023
Pop on Wemby after his career-high 38 PTS pic.twitter.com/Gz1xOEzqUO
San Antonio Spurs var þarna að vinna sinn annan leik á móti Phoenix Suns á stuttum tíma en liðið hafði unnið mjög dramatískan sigur, 115-114, á þriðjudaginn. Wembanyama var með 18 stig, 8 fráköst og 4 varin skot í þeim leik.
Devin Booker kom aftur inn í lið Suns og var næstum því með þrennu en hann skoraði 31 stig, gaf 13 stoðsendingar og tók 9 fráköst. Kevin Durant var síðan með 28 stig.
- Úrslitin í NBA í nótt:
- Phoenix Suns - San Antonio Spurs 121-132
- Philadelphia 76ers - Toronto Raptors 114-99
- New Orleans Pelicans - Detroit Pistons 125-116
- Utah Jazz - Orlando Magic 113-115