Ítalía er komið á EM 2024 í knattspyrnu eftir markalaust jafntefli gegn Úkraínu. Þá kom Harry Kane af bekknum og bjargaði stigi í Norður-Makedóníu.
Úkraína og Ítalía mættust á BayAreina í Leverkusen í Þýskalandi þar sem ekki er hægt að spila í Úkraínu vegna innrásar Rússa í landið. Fyrir leikinn var ljóst að Úkraína þyrfti sigur til að stökkva upp fyrir Ítalíu en liðin voru í 2. og 3. sæti C-riðils.
Ítalía var mun sterkari aðilinn í kvöld en hvorugu liðinu tókst að brjóta ísinn og Ítalía er því komið á EM. Úkraína situr hins vegar eftir með sárt ennið.
#EURO2024 pic.twitter.com/yUn7fRHqbM
— UEFA EURO 2024 (@EURO2024) November 20, 2023
Rico Lewis byrjaði í vinstri bakverðinum hjá Englandi, Trent Alexander-Arnold var á miðri miðjunni og Ollie Watkins var frammi. Gareth Southgate stillti samt sem áður upp gríðarlegu sterku liði og það kom því verulega á óvart þegar heimamenn komust yfir undir lok fyrri hálfleiks.
Lewis fékk þá dæmda á sig vítaspyrnu og gult spjald að launum. Enis Bardhi fór á vítapunktinn en Jordan Pickford gerði sér lítið fyrir og varði spyrnuna en boltinn datt fyrir Bardhi sem afgreiddi boltann í autt netið og heimamenn 1-0 yfir í hálfleik.
Jack Grealish jafnaði metin snemma í síðari hálfleik en markið var á endanum dæmt af vegna rangstöðu. Á 58. mínútu kom Harry Kane inn á fyrir Watkins og aðeins mínútu síðar hafði hann jafnað metin. Phil Foden tók hornspyrnu sem rataði beint á kollinn á Kane og þaðan fór boltinn í varnarmann og svo netið. Staðan orðin 1-1 og reyndust það lokatölur.
The points are shared in the #ThreeLions' final match of 2023. pic.twitter.com/KB5Un54x2B
— England (@England) November 20, 2023
England endaði á toppi C-riðils með 20 stig. Þar á eftir komu Ítalía og Úkraína með 14 stig hvort en Ítalía ofar á bæði markahlutfalli og innbyrðis viðureignum. Norður-Makedónía endaði með 8 stig en Malta rak lestina stigalaus.
Önnur úrslit í kvöld
- Norður-Írland 2-0 Danmörk
- San Marínó 1-2 Finnland
- Slóvenía 2-1 Kasakstan
Danmörk og Slóvenía enda með 22 stig á toppi H-riðils. Kasakstan og Finnland koma þar á eftir með 18 stig hvort.