Stærsta tap LeBrons á ferlinum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. nóvember 2023 09:30 LeBron James setti tvö met í nótt. getty/Tim Nwachukwu LeBron James náði merkum áfanga þegar Los Angeles Lakers mætti Philadelphia 76ers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Hann hafði samt litla ástæðu til að gleðjast eftir leik.
LeBron sló met Kareems Abdul-Jabbar yfir flestar mínútur spilaðar í NBA. Þá eru mínútur í deildar- og úrslitakeppni lagðar saman. LeBron hefur núna spilað 66.319 mínútur á ferlinum. Leikurinn í nótt var sögulegur fyrir LeBron af annarri ástæðu. Hann mátti nefnilega þola sitt stærsta tap á ferlinum. Lakers tapaði leiknum með 44 stigum, 138-94, en þetta er fimmta stærsta tap í sögu félagsins. „Þetta skiptir mig ekki miklu máli,“ sagði LeBron er hann var spurður út í mínútumetið sem hann sló. LeBron spilaði hálftíma í leiknum í nótt. Hann var stigahæstur í liði Lakers með átján stig og gaf auk þess fimm stoðsendingar. Hann tók hins vegar ekki eitt einasta frákast sem þykja tíðindi á þeim bænum. Tyrese Maxey skoraði 31 stig fyrir Sixers og gaf átta stoðsendingar. Joel Embiid, verðmætasti leikmaður NBA á síðasta tímabili, var með þrefalda tvennu; þrjátíu stig, ellefu fráköst og ellefu stoðsendingar. Lakers er í 8. sæti Vesturdeildarinnar með tíu sigra og átta töp. Sixers er í 4. sæti Austurdeildarinnar en er aðeins einum sigri frá toppi hennar.
NBA Mest lesið „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Fótbolti LIV-kylfingar mega áfram taka þátt í Ryder-bikarnum og PGA-meistaramótinu Golf Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ Íslenski boltinn Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum Handbolti Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Handbolti „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ Handbolti Atlético lagði sprækt lið Leipzig Fótbolti Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Handbolti Rautt spjald snemma leiks dýrt spaug fyrir Börsunga Fótbolti Raya hetjan er Skytturnar lögðu rútunni í Bergamo Fótbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira