Samninganefnd Alþýðusambandsins réði ráðum sínum á fundi í dag ítengslum við gerð nýrra kjarasamninga á almennum markaði eftir að núgildandi skammtímasamningar renna úr gildi hinn 31. janúar. Seðlabankinn hefur kallað eftir því að allir leggist á eitt við að ná niður verðbólgunni, bæði aðilar vinnumarkaðarins, hið opinbera og verslunin í landinu.
Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ segir samhljóm innan verkalýðshreyfingarinnar um að félög og landssambönd gangi sameignlega til nýrra langtíma kjarasamninga.
„En þetta er það stórt verkefni að verkalýðshreyfingin ein og sér stendur ekki undir því að minnka verðbólgu hér og lækka vexti og annað þess háttar sem þarf til,“ segir Finnbjörn.
Verkalýðshreyfingin kalli eftir ábyrgð annarra aðila eins og ríkis, sveitarfélaga, verslunar og fleiri. Engin teikn væru hins vegar á lofti um að þessir aðilar væru að gera eitthvað til koma til móts við verkalýðshreyfinguna í baráttunni við verðbólguna.
„Nýjasta dæmið eru þessar gjaldskrárhækkanir sveitarfélaganna. Þetta hægir dálítið áverkefninu hjá okkur. Þannig að við förum alltaf að vera varfærari og varfærari og þurfum alltaf fleiri og fleiri öryggisventla í komandi kjarasamninga,“ segir forseti ASÍ.
Sveitarfélögin ræða þessa dagana fjárhagsáætlanir fyrir næsta ár meðgjaldskrárhækkunum frá fimm til þrjátíu prósent. Önnur umræða fjárlaga hefst síðan á Alþingi í næstu viku.
Forseti ASÍ segir einu fyrirheitin í fjárlagafrumvarpinu að gjaldskrár hækkuðu ekki meira en um 2,5 prósent. Ekkert væri aftur á móti komið til móts við kröfur varðandi barna- og vaxtabætur og önnur tilfærslukerfi. Miklar verðbólguvæntingar bendi til að fyrirtæki ætli að hleypa öllum hækkunum út í verðlagið.
„Það eru mjög margir sem hafa áhrif á hvernig við verjum laununum okkar. Þá skiptir máli að allir taki sína ábyrgð og standi undir henni. Það eru ekki allir tilbúnir til þess og margir sem eru ekki farnir að sýna á spilin um hvað þeir ætli að gera. Allir eru að kalla eftir ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar en það eru fleiri sem þurfa að vera ábyrgir,“ segir Finnbjörn A. Hermannsson.