Styttir víða upp og rofar til Atli Ísleifsson skrifar 3. janúar 2024 07:21 Mikil hálka er víða á vegum og gangstéttum á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Vísir/Vilhelm Nú í morgunsárið eru austan fimm til þrettán metrar sekúndu á landinu og einhver rigning eða slydda í mörgum landshlutum.
Á vef Veðurstofunnar segir að þegar líði á daginn stytti upp nokkuð víða og rofi til, en það megi áfram búast við skýjuðu veðri austanlands og þar verði væntanlega lítilsháttar él síðdegis. Frost verður á bilinu núll til sex stig og er búist við að kólni smám saman í veðri. Hálka er nú á vegum og gangstéttum á höfuðborgarsvæðinu og víðar. „Á morgun er útlit fyrir aðgerðalítið veður, norðaustan 3-10 með bjartviðri sunnan heiða, en svolítil él á norðan- og austanverðu landinu. Frost 0 til 6 stig. Á föstudag verður áttin vestlæg eða breytileg og sem fyrr nær vindur sér ekki á strik. Búast má við dálitlum éljum í flestum landshlutum, en undir kvöld ætti að verða þurrt á landinu. Spár lengra fram í tímann gera ráð fyrir að snúist til sunnanáttar um helgina með hlýnandi veðri, í byrjun næstu viku yrði þá hitinn kominn vel yfir frostmark um allt land,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðaustan 3-10 m/s. Bjartviðri á Suður- og Vesturlandi, en dálítil él á norðan- og austanverðu landinu. Frost 0 til 8 stig. Á föstudag: Vestan og suðvestan 5-13, en hægari austantil á landinu. Svolítil él í flestum landshlutum, en þurrt um kvöldið. Frost yfirleitt 0 til 5 stig. Á laugardag: Suðlæg eða breytileg átt og víða bjart veður, en skýjað en úrkomulítið vestantil. Frost 0 til 10 stig, en hiti að 4 stigum vestast. Á sunnudag: Sunnanátt, skýjað og þurrt að kalla, en léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Hlýnandi veður. Á mánudag og þriðjudag: Sunnanátt og súld eða rigning með köflum, en bjartviðri um landið norðaustanvert. Hiti 3 til 8 stig.
Veður Mest lesið Regnbogafánar bannaðir í skólum og ríkisstofnunum Erlent Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Erlent Síður með ofbeldi barna spretti upp eins og gorkúlur Innlent Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Orkuveitan vill reisa fimmtán vindmyllur Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent Ætla að bæta þjónustu en störfum fækki í einhverjum tilvikum Innlent Nýtt gervigreindaræði vekur upp spurningar um höfundarétt Innlent Taka fyrir afnám réttinda grásleppusjómanna Innlent Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa Erlent Fleiri fréttir Dregur úr vindi þegar líður á daginn Sundgestir reknir inn vegna þruma og eldinga Hlýnandi veður Veðurviðvaranir um helgina Góður möguleiki á að sjá deildarmyrkva Snjókoma sunnantil eftir hádegi Stöku skúrir eða slydduél sunnan heiða Vindasamt á meðan öflugt úrkomusvæði gengur yfir landið Suðvestanátt með skúrum víða um land Vindasamt og úrkomusvæði gengur yfir landið Slydda eða snjókoma með köflum í flestum landshlutum Með rólegasta móti Skúrir og slydduél sunnan- og vestantil Rigning sunnan- og vestantil og kólnar síðdegis Dálítil væta og bætir í vind Hæg suðlæg átt og hiti að tíu stigum Mild sunnanátt og dálítil væta Væta af og til Íbúar á austari hluta landsins gætu séð til tunglmyrkvans Norðlæg átt en bjart að mestu sunnanlands Hiti að tíu stigum en víða næturfrost Vestlæg átt leikur um landið Víða allhvass vindur norðantil síðdegis Yfirleitt hægur vindur en allvíða él Breytileg átt og einhver él á sveimi Rólegt veður næstu daga Vindasamt og rigning Gul viðvörun á Vestfjörðum í kvöld og nótt Slydda og snjókoma víða um land Appelsínugular viðvaranir í kortunum Sjá meira