Hyggst leggja fram vantrauststillögu gegn Svandísi Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa 8. janúar 2024 10:51 Inga væntir þess að aðrir stjórnarandstæðingar vilji fylgja henni í að lýsa yfir vantrausti gegn Svandísi. Vísir/Vilhelm Formaður Flokks fólksins segist líta álit umboðsmanns Alþingis, um að matvælaráðherra hafi ekki gætt meðalhófs við bann á hvalveiðum, mjög alvarlegum augum. Hún hafi rætt við formenn annarra stjórnarandstöðuflokka á Alþingi um að lýsa yfir vantrausti gegn ráðherranum. „
Þetta álit kemur ekkert á óvart. Ég lít þetta mjög alvarlegum augum, þetta er skýrt álit. Mjög svo. Hún brýtur á lögmætisreglu stjórnsýsluréttar. Hún gengur gegn meðalhófi, hún gengur gegn atvinnufrelsi. Hún er í rauninni að brjóta stjórnarskrána, okkar grundvallarlög. Ég lít þetta mjög alvarlegum augum og þessi ráðherra ætti náttúrulega að stíga til hliðar,“ segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins í samtali við fréttastofu, og vísar til Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra. Umboðsmaður Alþingis birti fyrir helgi álit sitt vegna umkvörtunar Hvals hf. vegna reglugerðar sem Svandís setti í sumar um frestun hvalveiða. Reglugerðin tók gildi daginn áður en veiðar áttu að hefjast og varð mikið fjaðrafok vegna þessa. Í lok ágústmánaðar tilkynnti Svandís svo að hvalveiðar myndu hefjast að nýju. Svandís baki skaðabótaskyldu upp á hundruð milljóna Inga hefur frá því að Svandís tilkynnti reglugerðina verið mjög gagnrýnin á það hvernig Svandís stóð að frestuninni, eins og margir. Þó hefur Inga verið fylgjandi því að banna hvalveiðar og að dýravelferð sé höfð í hávegum. Til að mynda felldi Inga tár og gekk út af fundi atvinnuveganefndar í sumar eftir að Svandís sýndi eftirlitsmyndband MAST af hvalveiðum. Hún sagði þó ósmekklegt af Svandísi að hafa kynnt frestunina daginn áður en veiðar áttu að hefjast og varaði við því að Svandís hafi með þessu bakað íslenskum skattgreiðendum skaðabótaskyldu. Þetta endurtekur hún nú. „Hún er að baka okkur, ríkissjóði, skaðabótaskyldu upp á hundruð milljóna króna. Þetta álit tekur af allan vafa um það og hún gengur í raun þvert á allar ráðleggingar um það að þetta væri mjög vafasamur gjörningur en hún bara lagði undir sig hausinn og fór sína eigin leið og þetta er niðurstaðan,“ segir Inga. Fara gegn eigin sannfæringu ef þeir styðja ekki tillöguna Að hennar mati komi ekki annað til greina en að vantrausti verði lýst yfir. „Það hlýtur að vera í raunverulegri skoðun, það liggur alveg á borðinu ef hún ætlar að koma fram eins og hún virðist gera, eftir að álitið er birt henni og okkur öllum, þá sýndi hún ekkert sem heitir auðmýkt eða það að hún ætli að axla ábyrgð. Þannig að já, mér finnst það algjörlega liggja á borðinu að við hljótum að leggja fram vantrauststillögu á hana þegar þingið kemur saman,“ segir Inga. Að hennar mati er ólíklegt að slík tillaga verði felld, sérstaklega í ljósi þess hve óánægðir Sjálfstæðismenn hafi verið með framgöngu ráðherra í málinu. „Ég upplifi það þannig að það verður þeim mjög erfitt að ætla að fella slíkt vantraust vegna þess að Sjálfstæðismenn eru búnir að segja það alls staðar að þeir vantreysti þessum ráðherra. Þeir gerðu það strax í sumar þegar hún kom með þessa reglugerð þar sem hún bannaði hvalveiðarnar,“ segir Inga. Greiði Sjálfstæðismenn gegn slíkri tillögu sé augljóst að hennar mati að þeir fari gegn eigin sannfæringu. „Og eiginlega þvert gegn því sem þeir hafa áður sagt og þá eru þeir komnir upp í algera andstöðu við sjálfa sig. Það liti mjög einkennilega út, svo ekki sé meira sagt, ef þeir myndu fella vantraust gegn ráðherra sem þeir treysta engan vegin og hafa verið ósáttir við lengi.“ „Ég kalla það valdníðslu“ Hún telur líklegt að vanstrauststillaga verið lögð fram strax 22. janúar, þegar þing kemur aftur saman. Þá sé líklegt að stjórnarandstaðan taki höndum saman og leggi fram sameiginlega tillögu. Inga segist byrjuð að ræða við hina formennina. „Þetta er á byrjunarstigi. Ég byrjaði að skoða þetta af einhverjum alvarleika í gær og þetta er þannig að við erum virkilega að hugsa málið. Við munum koma með þessa vantrauststillögu en vonandi með öllum hinum líka. Ég heyri ekki betur en það líti þetta allir mjög alvarlegum augum. Enda er þetta grafalvarlegt mál,“ segir Inga. „Það er grafalvarlegt mál þegar handhafi framkvæmdarvalds gengur svona þvert á stórnarskrá og lögmætisreglur og reglur stjórnsýsluréttar. Það er grafalvarlegt mál þegar ráðherra kemur með reglugerð án þess að hafa nokkrar heimilidr til þess. Ég kalla það valdníðslu.“
Hvalveiðar Alþingi Flokkur fólksins Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Ósammála um útgangspunkt Umboðsmanns Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks segir álit umboðsmanns um hvalveiðar annars vegar og Íslandsbankasöluna hins vegar ólík enda hafi matvælaráðherra brotið gegn reglum stjórnskipunarréttar og að öllum líkindum bakað ríkinu skaðabótaskyldu sem fyrrverandi fjármálaráðherra hafi ekki gert. Málið verði að taka alvarlega. 7. janúar 2024 13:38 Sjálfstæðismenn felli mögulega vantrauststillögu „með óbragð í munni“ Prófessor í stjórnmálafræði telur ekki að ríkisstjórnin springi vegna álits Umboðsmanns Alþingis í hvalveiðamálinu og Sjálfstæðismenn myndu verja Svandísi mögulegu vantrausti með æluna upp í kok. 7. janúar 2024 20:01 Sjálfstæðismenn felli mögulega vantrauststillögu „með óbragð í munni“ Prófessor í stjórnmálafræði telur ekki að ríkisstjórnin springi vegna álits Umboðsmanns Alþingis í hvalveiðamálinu og Sjálfstæðismenn myndu verja Svandísi mögulegu vantrausti með æluna upp í kok. 7. janúar 2024 20:01 Telur einsýnt að Svandís eigi að víkja Forsætisráðherra telur ekki ástæðu fyrir matvælaráðherra til að segja af sér í ljósi álits Umboðsmanns alþingis um hvalveiðibann í sumar. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir afsögn Bjarna Benediktssonar hafa skapað fordæmi og Svandís eigi að víkja. 6. janúar 2024 19:08 Kristján segir Hval ætla að krefjast skaðabóta Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf. segir fyrirtækið ætla að sækja bætur vegna þess stórfellda tjóns sem ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur um tímabundna stöðvun hvalveiða síðasta sumar hafi valdið félaginu og starfsmönnum þess, í ljósi álits Umboðsmanns Alþingis. 6. janúar 2024 07:20 Mest lesið Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Innlent Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Erlent Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Innlent Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Joe Biden með krabbamein Erlent Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Innlent Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Innlent Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Innlent Fleiri fréttir Segist ekki taka hagsmuni sela fram yfir hagsmuni íþrótta Saumandi hressar og skemmtilegar bútasaumskonur Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Besta maíveður í manna minnum og ungir ofurhugar Varað við bikblæðingum um land allt Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Tilraun með ræktun hveitis á Íslandi gefur góð fyrirheit Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Ekki hissa á góðu gengi Ísrael og innsetningarmessa páfans Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Staðan í hagkerfinu og alþjóðamálin Eins og að vera fangi í eigin líkama Þrír réðust á ungan mann í Árbænum og flúðu á brott Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Framtíðar kvikmyndagerðarfólk í Sunnulækjarskóla á Selfossi Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Laugdælingur og Hvergerðingur hlutskarpastir í Pangeu Fjölgun falsaðra skilríkja og úrslitakvöld Eurovision Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sjá meira
Ósammála um útgangspunkt Umboðsmanns Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks segir álit umboðsmanns um hvalveiðar annars vegar og Íslandsbankasöluna hins vegar ólík enda hafi matvælaráðherra brotið gegn reglum stjórnskipunarréttar og að öllum líkindum bakað ríkinu skaðabótaskyldu sem fyrrverandi fjármálaráðherra hafi ekki gert. Málið verði að taka alvarlega. 7. janúar 2024 13:38
Sjálfstæðismenn felli mögulega vantrauststillögu „með óbragð í munni“ Prófessor í stjórnmálafræði telur ekki að ríkisstjórnin springi vegna álits Umboðsmanns Alþingis í hvalveiðamálinu og Sjálfstæðismenn myndu verja Svandísi mögulegu vantrausti með æluna upp í kok. 7. janúar 2024 20:01
Sjálfstæðismenn felli mögulega vantrauststillögu „með óbragð í munni“ Prófessor í stjórnmálafræði telur ekki að ríkisstjórnin springi vegna álits Umboðsmanns Alþingis í hvalveiðamálinu og Sjálfstæðismenn myndu verja Svandísi mögulegu vantrausti með æluna upp í kok. 7. janúar 2024 20:01
Telur einsýnt að Svandís eigi að víkja Forsætisráðherra telur ekki ástæðu fyrir matvælaráðherra til að segja af sér í ljósi álits Umboðsmanns alþingis um hvalveiðibann í sumar. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir afsögn Bjarna Benediktssonar hafa skapað fordæmi og Svandís eigi að víkja. 6. janúar 2024 19:08
Kristján segir Hval ætla að krefjast skaðabóta Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf. segir fyrirtækið ætla að sækja bætur vegna þess stórfellda tjóns sem ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur um tímabundna stöðvun hvalveiða síðasta sumar hafi valdið félaginu og starfsmönnum þess, í ljósi álits Umboðsmanns Alþingis. 6. janúar 2024 07:20