Útlit fyrir hvassan vind með snjókomu syðst Atli Ísleifsson skrifar 19. janúar 2024 07:23 Spáð er frosti á bilinu þrjú til sextán stig í dag. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir norðaustankalda og lítilsháttar él norðan heiða í dag, en annars bjart með köflum. Síðdegis er búist við vaxandi austanátt og að þykkni upp sunnanlands, en útlit er fyrir hvassan vind með snjókomu eða slyddu syðst í kvöld.
Gul viðvörun er í gildi í kvöld á Suðurlandi vegna hríðar, einkum undir Eyjafjöllum. Spáð er frosti á bilinu þrjú til sextán stig, kaldast í innsveitum norðaustantil. „Í nótt dregur smám saman úr vindi. Á morgun verður suðaustanblástur eða kaldi og víða él eða skúrir, en úrkomuminna síðdegis og rofar til um landið norðaustanvert. Frost 0 til 5 stig, en hiti yfirleitt 0 til 3 stig við sjávarsíðuna,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðvestlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s, snjókoma eða slydda með köflum, en styttir upp sunnantil síðdegis. Frost 0 til 10 stig, en hiti um eða yfir frostmarki syðst. Á sunnudag: Breytileg átt, 3-10, skýjað og dálítil él með ströndinni norðan- og vestanlands, en annars bjart með köflum. Kólnar í veðri. Á mánudag: Norðlæg átt, 3-10 m/s og dálítil él norðantil, en að mestu bjart syðra. Frost 2 til 15 stig, mildast syðst. Á þriðjudag: Vaxandi suðlæg átt og lítilsháttar él vestanlands, en yfirleitt bjart fyrir austan. Hægt hlýnandi veður. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt með éljum eða skúrum. Hiti 0 til 5 stig. Á fimmtudag: Líkur á stífri suðvestanátt með skúrum og síðar éljum. Kólnar í veðri.
Veður Mest lesið Regnbogafánar bannaðir í skólum og ríkisstofnunum Erlent Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Erlent Síður með ofbeldi barna spretti upp eins og gorkúlur Innlent Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Orkuveitan vill reisa fimmtán vindmyllur Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent Ætla að bæta þjónustu en störfum fækki í einhverjum tilvikum Innlent Nýtt gervigreindaræði vekur upp spurningar um höfundarétt Innlent Taka fyrir afnám réttinda grásleppusjómanna Innlent Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa Erlent Fleiri fréttir Dregur úr vindi þegar líður á daginn Sundgestir reknir inn vegna þruma og eldinga Hlýnandi veður Veðurviðvaranir um helgina Góður möguleiki á að sjá deildarmyrkva Snjókoma sunnantil eftir hádegi Stöku skúrir eða slydduél sunnan heiða Vindasamt á meðan öflugt úrkomusvæði gengur yfir landið Suðvestanátt með skúrum víða um land Vindasamt og úrkomusvæði gengur yfir landið Slydda eða snjókoma með köflum í flestum landshlutum Með rólegasta móti Skúrir og slydduél sunnan- og vestantil Rigning sunnan- og vestantil og kólnar síðdegis Dálítil væta og bætir í vind Hæg suðlæg átt og hiti að tíu stigum Mild sunnanátt og dálítil væta Væta af og til Íbúar á austari hluta landsins gætu séð til tunglmyrkvans Norðlæg átt en bjart að mestu sunnanlands Hiti að tíu stigum en víða næturfrost Vestlæg átt leikur um landið Víða allhvass vindur norðantil síðdegis Yfirleitt hægur vindur en allvíða él Breytileg átt og einhver él á sveimi Rólegt veður næstu daga Vindasamt og rigning Gul viðvörun á Vestfjörðum í kvöld og nótt Slydda og snjókoma víða um land Appelsínugular viðvaranir í kortunum Sjá meira