Skaut á hermikrákuna Maupay: „Hefur ekki skorað nógu mörk til að vera með eigið fagn“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. febrúar 2024 12:31 Neal Maupay fagnaði eins og James Maddison eftir að hafa komið Brentford yfir gegn Tottenham. getty/Alex Pantling James Maddison skaut hressilega á Neal Maupay eftir sigur Tottenham á Brentford, 3-2, í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Maupay kom Brentford yfir eftir stundarfjórðung. Hann fagnaði með því að þykjast kasta pílu, eins og Maddison gerir venjulega þegar hann skorar. Enski landsliðsmaðurinn var ekki hrifinn af fagni Frakkans og lét hann heyra það eftir leikinn. „Hann hefur ekki skorað nógu mörg mörk til að vera með sitt eigið fagn. Hann stal mínu. En þetta endaði vel fyrir okkur,“ sagði Maddison sem sneri aftur í lið Spurs eftir að hafa verið frá í nokkrar vikur vegna meiðsla. Maupay lét þó ekki deigann síga og svaraði fyrir sig á Instagram. „Svekktur að við höfum ekki unnið. Hef skorað meira og fallið sjaldnar á ferlinum en James Maddison. Við reynum aftur á mánudaginn,“ skrifaði franski framherjinn sem sneri aftur til Brentford á láni frá Everton í haust. View this post on Instagram A post shared by Neal Maupay (@nealmaupay) Sem fyrr sagði komst Brentford yfir í leiknum í gær. Tottenham skoraði svo þrjú mörk á átta mínútum í upphafi seinni hálfleiks áður en Ivan Toney minnkaði muninn fyrir Brentford. Lokatölur 3-2, Spurs í vil. Tottenham er í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en Brentford í því fimmtánda.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum Íslenski boltinn Handtekin fyrir að lemja kærastann en hann vildi ekki kæra Sport Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög Körfubolti Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Körfubolti Sveindís spilaði fyrsta leikinn fyrir Angel City Fótbolti Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Enski boltinn „Erfið og flókin staða“ Enski boltinn Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun Enski boltinn „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ Íslenski boltinn „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Handbolti Fleiri fréttir Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Liðin sem verða að gera betur á markaðnum Sænska landsliðskonan Zigiotti til liðs við Rauðu djöflana Sjáðu mörkin fjögur hjá United í nótt Arsenal skoraði ekki og tapaði í fyrsta leik Gyokeres Fjórtán er vinsælasta númer sumarsins Eigendur Liverpool eyða meira í Isak en í að kaupa fótboltafélag í Madrid Isak æfir hjá Orra Steini og félögum Breyttir tímar hjá Man. United: Höjlund skoraði í stórsigri Brady í Birmingham þáttum: Efaðist strax um Rooney og kallaði leikmennina lata Šeško nú helsta skotmark Rauðu djöflanna Wirtz með fyrsta markið sitt fyrir Liverpool Vefsíða Arsenal hrundi í miðju Gyokeres æði Bayern staðfestir kaupin á Diaz: „Lucho ist hier“ Flóðbylgjuviðvörunin hefur ekki áhrif á leik Liverpool Hvernig hefur Liverpool efni á Alexander Isak? Sjá meira