Norðanátt og víða snarpir vindstrengir við fjöll Atli Ísleifsson skrifar 6. febrúar 2024 07:16 Frost verður á bilinu þrjú til tólf stig. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir norðan- og norðvestanátt í dag þar sem víða verða tíu til átján metrar á sekúndu. Reikna má með að verði snjókoma með köflum á norðanverðu landinu og líkur á versnandi færð.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði bjart með köflum sunnantil en mögulega snarpir vindstrengir við fjöll og sums staðar skafrenningur. Frost verður á bilinu þrjú til tólf stig og mun svo dregur aðeins úr vindi í nótt. „Norðlæg átt 8-13 á morgun en norðvestan 13-18 við fjöll um suðaustanvert landið. Bjart að mestu sunnanlands en él fyrir norðan. Léttir til norðvestantil þegar líður á daginn. Áfram kalt í veðri. Breytileg átt 3-10 á fimmtudag en norðvestan 8-15 suðaustantil fyrri part dagsins. Bjart veður í flestum landshlutum en dálítil él sums staðar við ströndina. Herðir á frosti, 8 til 20 stiga frost um kvöldið. Veðrið breytist lítið á föstudag, en auknar líkur á snjókomu um helgina og dregur smám saman úr frosti,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðan 8-13 m/s en 13-18 sums staðar suðaustantil. Léttskýjað um landið sunnanvert, en él fyrir norðan. Frost 2 til 8 stig. Dregur víða úr vindi og kólnar um kvöldið. Á fimmtudag: Norðlæg átt 3-8, en 8-13 með austurströndinni. Víða þurrt og bjart veður, en dálítil él við norður- og austurströndina. Frost 3 til 13 stig, minnst við sjóinn. Á föstudag: Hæg breytileg átt og víða léttskýjað. Frost 5 til 17 stig. Á laugardag: Austlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum. Víða þurrt en dálítil snjókoma vestanlands og einnig syðst á landinu. Dregur aðeins úr frosti. Á sunnudag: Austlæg átt og víða dálítil snjókoma eða él, en léttskýjað norðantil. Frost 0 til 12 stig, mildast suðvestantil. Á mánudag: Vaxandi sunnanátt, snjókoma og hiti nálægt frostmark vestantil á landinu en hægari, yfirleitt bjart og talsvert frost austanlands.
Veður Mest lesið Regnbogafánar bannaðir í skólum og ríkisstofnunum Erlent Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Erlent Síður með ofbeldi barna spretti upp eins og gorkúlur Innlent Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Orkuveitan vill reisa fimmtán vindmyllur Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent Ætla að bæta þjónustu en störfum fækki í einhverjum tilvikum Innlent Nýtt gervigreindaræði vekur upp spurningar um höfundarétt Innlent Taka fyrir afnám réttinda grásleppusjómanna Innlent Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa Erlent Fleiri fréttir Dregur úr vindi þegar líður á daginn Sundgestir reknir inn vegna þruma og eldinga Hlýnandi veður Veðurviðvaranir um helgina Góður möguleiki á að sjá deildarmyrkva Snjókoma sunnantil eftir hádegi Stöku skúrir eða slydduél sunnan heiða Vindasamt á meðan öflugt úrkomusvæði gengur yfir landið Suðvestanátt með skúrum víða um land Vindasamt og úrkomusvæði gengur yfir landið Slydda eða snjókoma með köflum í flestum landshlutum Með rólegasta móti Skúrir og slydduél sunnan- og vestantil Rigning sunnan- og vestantil og kólnar síðdegis Dálítil væta og bætir í vind Hæg suðlæg átt og hiti að tíu stigum Mild sunnanátt og dálítil væta Væta af og til Íbúar á austari hluta landsins gætu séð til tunglmyrkvans Norðlæg átt en bjart að mestu sunnanlands Hiti að tíu stigum en víða næturfrost Vestlæg átt leikur um landið Víða allhvass vindur norðantil síðdegis Yfirleitt hægur vindur en allvíða él Breytileg átt og einhver él á sveimi Rólegt veður næstu daga Vindasamt og rigning Gul viðvörun á Vestfjörðum í kvöld og nótt Slydda og snjókoma víða um land Appelsínugular viðvaranir í kortunum Sjá meira