Þrettán til tuttugu metrar á sekúndu Eiður Þór Árnason skrifar 17. febrúar 2024 08:22 Það verður blautur dagur í höfuðborginni. Vísir/Vilhelm Í dag er spáð austan og suðaustan 13 til 20 metrum á sekúndu með rigningu eða súld og hita á bilinu 2 til 8 stig sunnantil. Norðanlands verður hægari vindur, úrkomulítið og frost 0 til 5 stig, en þar hlýnar þegar líður á daginn.
Í kvöld verður svo suðaustan 5 til 13 metrar á sekúndu og væta með köflum um allt land. Svo hljóðar spá Veðurstofu Íslands en fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings að hlýtt og fremur rakt loft nálgist landið úr suðri og því stefni í að talsvert af snjónum á láglendi á sunnanverðu landinu taki upp á næstu dögum. Gert er ráð fyrir sunnan og suðvestan 5 til 10 metrum á sekúndu og skúrum á morgun, en þegar líður á daginn gengur í suðaustan 8 til 13 metra á sekúndu með rigningu sunnan- og vestanlands. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast syðst. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Suðlæg átt, 3-8 m/s og lítilsháttar skúrir, en bjart með köflum á Norður- og Austurlandi. Gengur í suðaustan 10-15 m/s með rigningu sunnan- og vestanlands um kvöldið. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst. Á mánudag: Suðlæg átt, 3-10 m/s, hvassast við suðurströndina. Dálítil væta, en að mestu bjart norðaustantil. Gengur í suðaustan 13-18 m/s með rigningu sunnan- og vestanlands seinnipartinn. Hiti 2 til 7 stig. Á þriðjudag: Suðvestan 8-13 m/s og él, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Kólnandi veður. Á miðvikudag og fimmtudag: Útlit fyrir breytilega átt og dálitla snjókomu eða slyddu við sjávarsíðuna. Hiti um og undir frostmarki. Á föstudag: Líklega norðlæg átt með snjókomu, en bjartviðri sunnan heiða.
Veður Mest lesið Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Innlent Vaktin: Vopnahlé tekur gildi á Gasa Erlent Tuttugu manns í rútuslysi Innlent „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Innlent „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Innlent TikTok bann í Bandaríkjunum Erlent Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ferskt upphaf Innlent Stofnaði eigin „meme“-rafmynt rétt fyrir embættistöku Erlent Mun færri slasaðir eftir skíðaslysið en talið var í fyrstu Erlent Fundu villtan mann í skítaveðri á Fagradalsfjalli Innlent Fleiri fréttir Hvessir sunnan- og austantil í kvöld Kólnar í veðri Vindur nær stormstyrk á norðvestanverðu landinu Gular viðvaranir fyrir norðan og vestan Auknar líkur á skriðum á Vestfjörðum, Vestur- og Suðurlandi Bætir í úrkomu og hiti nær tíu stigum Suðlægur vindur og væta sunnan- og vestantil Veðurviðvaranir um allt land vegna hvassviðris og hláku Úrkomusvæði vaxandi lægðar nálgast óðum Víða skúrir og hlýnandi veður Bjart, kalt og hægur vindur Yfirleitt þurrt og bjart veður sunnan- og vestantil Má reikna með snjókomu eða éljum síðdegis Norðanáttin getur náð stormstyrk Vindstrengir ná mögulega stormstyrk í kvöld Slydda eða snjókoma sunnan- og vestantil Dálítil él og frost að tíu stigum Kalt og rólegt veður á fyrsta degi ársins Talsvert frost en rólegt veður þegar nýtt ár gengur í garð Segir umferðarmenninguna oft erfiða á Hellisheiðinni Snjómokstur hófst klukkan fjögur í nótt „Það versta stendur yfir áramótin“ Útlit fyrir snjókomu vestast Smálægðir keppast við að stýra veðrinu í dag Spáir stillu og miklu svifryki um áramótin Stíf suðvestanátt áfram ríkjandi Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Appelsínugular viðvaranir og heiðar lokaðar Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Sjá meira