Veður

Kólnar aftur í kvöld og spáð stormi um helgina

Atli Ísleifsson skrifar
Um helgina er spáð norðvestan hvassviðri eða stormi. Él á norðan- og austanverðu landinu á laugardag og bætir í ofankomu þar á sunndag.
Um helgina er spáð norðvestan hvassviðri eða stormi. Él á norðan- og austanverðu landinu á laugardag og bætir í ofankomu þar á sunndag. Vísir/Vilhelm

Lægðin sem nú er að finna vestur af landinu og bar með sér snjókomubakka yfir vestanvert landið, hreyfist hægt og bítandi til vesturs og léttir í kjölfarið smám saman til. Í öðrum landshlutum er bjart með köflum en stöku él eru á víð og dreif.

Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að frost verði null til sjö stig að deginum en rétt yfir frostmarki sunnanlands. Í kvöld muni svo kólna aftur, verða fimm til fimmtán stig í nótt og kaldast inn til landsins fyrir norðan.

„Um helgina er spáð norðvestan hvassviðri eða stormi. Él á norðan- og austanverðu landinu á laugardag og bætir í ofankomu þar á sunndag. Bjart að mestu suðvestantil. Hlýnar heldur á sunnudag, hiti 0 til 5 stig sunnanlands en um eða undir frostmarki fyrir norðan og austan.

Minnkandi norðaustanátt á mánudag. Áfram él á norðan- og austanverðu landinu og bjart með köflum suðvestanlands. Hiti breytist lítið.

Aðfaranótt þriðjudags kemur smálægð upp að landinu sunnanverðu og veldur óvissu í spám. Útlit er fyrir austlægar áttir og dálitla rigningu eða slyddu sunnan- og vestanlands en þurrt að mestu norðaustantil. Frost fyrir norðan og austan, en frostlaust sunnan- og suðvestantil,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Norðaustan 10-18 m/s, en 15-23 undir kvöld, hvassast suðaustantil á landinu. Dálítil él norðan- og austanlands, en bjartviðri á Suður- og Vesturlandi. Frost 0 til 8 stig, en frostlaust við suðurströndina yfir daginn.

Á sunnudag: Norðan og norðaustan 15-23 og snjókoma með köflum, en þurrt suðvestantil. Víða vægt frost en hiti 1 til 6 stig sunnanlands að deginum.

Á mánudag: Norðan 10-18 og snjókoma á norðanverðu landinu en slydda við austurströndina. Lengst af þurrt sunnantil. Hiti víða um frostmark, en allt að 5 stig syðst.

Á þriðjudag: Norðaustan- og austanátt. Snjókoma með köflum og hiti um frostmark, en slydda eða rigning á sunnanverðu landinu með hita 0 til 5 stig.

Á miðvikudag: Austlæg átt og dálítil él á víð og dreif en rigning með köflum vestan- og sunnanlands. Hiti 0 til 5 stig en um eða undir frostmarki norðan- og austantil.

Á fimmtudag: Útlit fyrir breytilega átt. Rigning eða snjókoma með köflum á vestanverðu landinu en bjart að mestu austanlands. Hiti breytist lítið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×