McIlroy sótti um skilnaðinn á mánudaginn, daginn eftir að hann vann Wells Fargo Championship mótið. Þau Erica hafa verið gift í sjö ár.
Í dag hefst PGA-meistaramótið, annað risamót ársins, í karlagolfinu. McIlroy mætti af því tilefni á blaðamannafund í gær.
Fundarstjóri ýtti hins vegar möguleikanum á spurningum um skilnaðinn strax út af borðinu og sagði að McIlroy myndi ekki svara neinu varðandi einkalíf sitt.
McIlroy var þó spurður hvernig hann hefði það og svaraði með því að segja að hann væri klár í að spila.
McIlroy freistar þess að vinna sitt fyrsta risamót í áratug. Hann vann síðast sigur á PGA-meistaramótinu 2014.
PGA-meistaramótið hefst í dag og verður í beinni útsendingu á sportrásum Stöðvar 2. Bein útsending frá fyrsta keppnisdegi hefst klukkan 18:00 á Stöð 2 Sport 4.