Má ekki hleypa köttum inn í sameiginlegt þvottahús Jón Ísak Ragnarsson skrifar 11. júlí 2024 20:22 Kærunefnd húsamála hefur fallist á kröfur manns sem vill að nágranni hans hætti að hleypa köttum sínum í sameiginlegt þvottahús þeirra. Myndin er úr safni. Getty Íbúi í fjölbýlishúsi má ekki hleypa köttum sínum í gegnum sameiginlegt þvottahús, og ekki geyma þar dekk og aðra persónulega muni. Þetta er álit kærunefndar húsamála, en erindi barst til þeirra frá nágranna íbúans.
Í málsmeðferð kærunefndarinnar segir að nágranninn, hér eftir nefndur álitsbeiðandi, hafi sent erindi vegna ágreinings við íbúann, hér eftir nefndann gagnaðila, í desember 2023. Greinargerð hafi ekki borist frá gagnaðila þrátt fyrir ítrekaða beiðni kærunefndarinnar. Gekk um þvottahúsið eins og eigin geymslu Álitsbeiðandi kveður gagnaðila ganga um sameign hússins eins og hún sé hans eigin geymsla. Þvottur og hreinlætisvörur séu skildar eftir liggjandi á gólfinu, sem og bíldekk og hlaupahjól. Erfitt hafi verið fyrir álitsbeiðanda að komast inn í sameignina vegna þessa og jafnvel að þvottavél sinni. Einnig hafi drasl verið skilið eftir á þvottavél álitsbeiðanda, svo sem kattahár, óhreinn kústur og fleira. Álitsbeiðanda grunar að kettir gagnaðila fari í sameignina, og segir einnig að sameignin hafi ekki verið þrifin síðan gagnaðili flutti inn og ekki hafi verið gætt að því að loftað sé út í þvottahúsinu. Þetta geti leitt til þess að raki og silfurskottur komi sér fyrir. Gagnaðili hafi lokað fyrir samskipti þegar reynt var að ræða við hann um málið. Íbúinn geymdi bíldekk úr eigin safni í þvottahúsinu, ásamt öðru drasli.Vísir/Vilhelm Féllust á báðar kröfurnar Kröfur álitsbeiðanda voru tvær: Að viðurkennt verði að gagnaðila beri að fjarlægja dekk og aðra muni sem hann geymi í sameiginlegu þvottahúsi og gæti að hreinlæti og útloftun þar Að viðurkennt verði að gagnaðila sé óheimilt að hleypa köttum í sameiginlegt þvottahús Kærunefndin féllst á báðar kröfurnar, en gagnaðili lét ekki til sín taka og var úrlausn málsins því byggð á þeim sjónarmiðum og gögnum sem álitsbeiðandi lagði fyrir nefndina. Nefndin segir að á grundvelli 2. mgr. 35. gr. laga um fjöleignarhús, sé hagnýting eins og að geyma persónulega muni á borð við hlaupahjól og bíldekk óheimil. Ekki sé um að ræða hefðbundin afnot af þvottahúsi. Þá segir einnig að á grundvelli 2. mgr. 33. gr. g. laga um fjöleignarhús megi kettir ekki vera í sameign nema þegar verið er að færa dýrið að og frá séreign og skuli þeir vera í taumi og umsjá manns sem hefur fulla stjórn á þeim. Ekki þurfi að fara í gegnum þvottahúsið til að komast í séreign gagnaðila og honum því ekki heimilt að hleypa þeim í þvottahúsið.
Nágrannadeilur Mest lesið Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Hvers vegna að fella ísbirni? Innlent Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Innlent Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Erlent Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Erlent Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið Innlent Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Innlent Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Innlent Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Innlent Áfram í varðhaldi fyrir að ræna og hóta ungmennum Innlent Fleiri fréttir Hvers vegna að fella ísbirni? Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Áfram í varðhaldi fyrir að ræna og hóta ungmennum Fjölskylda flugmanns vill að lögregla rannsaki andlát hans Sýndi lögreglu löngutöng og var ekinn út af Svanhildur afhenti Biden trúnaðarbréf Loka almenningsbókasafninu og leita til Akureyrar Búið að taka sýni úr ungu birnunni Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Stofna námsstyrk á sviði umhverfismála í nafni Ellýjar Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Maður sem var leitað við Vík fannst látinn Ákvörðun ráðherra viðurkenning á að mikil þekking sé fyrir norðan Biðin óásættanleg og vill skýr svör frá ríkinu Hinir grunuðu í mansalsmálinu ganga lausir Sveitarfélögin krefja ríkið svara um NPA Norðurlönd dýpka samvinnu í varnarmálum Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Bein útsending: Birting lýðheilsuvísa í Grindavík Skerjafjarðarskáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Húnninn settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Sjá meira