Neitar að staðfesta kappræður við Harris fyrr en eftir útnefninguna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 26. júlí 2024 07:32 Trump virðist ekkert æstur í að mæta Harris í kappræðum. Getty/Brandon Bell Framboð Donald Trump gaf frá sér yfirlýsingu í gær þar sem greint var frá því að vegna yfirstandandi „ringulreiðar“ meðal Demókrata myndi Trump ekki samþykkja kappræður við Kamölu Harris fyrr en hún hefði verið formlega útnefnd forsetaefni Demókrataflokksins.
Í yfirlýsingunni var því haldið fram að margir Demókratar væru ósannfærðir um að Harris gæti sigrað Trump í kosningunum, þeirra á meðal Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti. Þeir væru enn að vona að einhver betri stigi fram. Þannig væri óviðurkvæmilegt að skipuleggja kappræður á meðan Demókratar gætu enn skipt um skoðun. What happened to “any time, any place”? https://t.co/HlR6UmlZxx— Kamala Harris (@KamalaHarris) July 26, 2024 New York Times hefur greint frá því að Obama hafi átt í reglulegum samskiptum við Harris frá því að Joe Biden dró sig í hlé um síðustu helgi en hann hafi ekki viljað gefa út stuðningsyfirlýsingu til að forðast að hafa of mikil áhrif á þróun mála. Heimildarmenn segja hann hins vegar hafa haft gaman af sögusögnum um meint vantraust hans í garð Harris og stuðningsyfirlýsing sé væntanleg innan tíðar. „Hvað varð um „hvenær sem er, hvar sem er“?“ voru viðbrögð Harris við ákvörðun Trump. Trump gaf það til kynna skömmu eftir að Biden steig til hliðar sem forsetaefni Demókrata að hann ætlaði ekki að mæta Harris í september, eins og stóð til með Biden. Lýsti hann vantrausti á ABC News og vildi fremur að kappræðurnar yrðu í umsjá Fox News. Hann sagðist þó opinn fyrir því að mæta Harris oftar en einu sinni.
Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Donald Trump Mest lesið Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Erlent Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Innlent Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Innlent Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Innlent Í gæsluvarðhaldi fram í september Innlent RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Innlent Ákærður fyrir fjórar nauðganir Erlent Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Innlent „Það er hetja á Múlaborg. Hetja sem sagði frá“ Innlent Fleiri fréttir Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Mögulegt að ná fram öryggistryggingum en aðild að NATO úr myndinni Ákærður fyrir fjórar nauðganir Gífurlegur munur á pyngjum flokkanna vestanhafs Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Hægri sveifla í Bólivíu eftir tveggja áratuga stjórnartíð sósíalista Handtekinn í tengslum við morðið við mosku í Örebro „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Sjá meira