Einar gerir veður morgundagsins að umfjöllunarefni á síðu sinni Bliku.is og eins og sjá má á veðurkortinu hér fyrir neðan er engin blíða í kortunum.

„Klárlega mun snjóa í fjöll norðanlands, að minnsta kosti í nótt og fram eftir degi. Líklega 10-20 sentímetrar ofan 800-1000 metra. Til dæmis í Fljótum og við utanverðan Eyjafjörð sem og í Fjörðum og Flateyjardal,“ skrifar hann.
Hann segir snjókomu í fjöll um þetta leyti óvenjulega og að við séum að tala um ansi mikinn snjó þar sem mest verður. Varla sé hægt að finna tilvik á þessari öld þar sem markvert hefur náð að snjóa í fjöll í kringum tuttugasta ágúst.

„Aðalmálið finnst mér vera að það hefur ekki verið að gera svona alvöru norðlæga kafla svona síðla sumars síðastliðin ár. Ekki fyrr en við erum komin fram í september. Við höfum ekki séð það á þessari öld,“ segir Einar í samtali við fréttastofu.
Hann tekur þó fram að snjórinn sé ekki kominn til að vera.
„Það er enn þá sumar,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur.