Það var að morgni 21. ágúst árið 1924 sem flugvélarnar „New Orleans" og „Chicago" hófu sig flugs frá Reykjavíkurhöfn áleiðis til Suður-Grænlands. Áfangastaðurinn var Frederiksdal, nú Narsarmijit, syðsta byggð Grænlands, sem er um fimmtíu kílómetra norður af Hvarfi, syðsta odda landsins, en þangað náðu flugvélarnar eftir um ellefu klukkustunda flug frá Íslandi.

Flugvélarnar voru hluti af hnattflugi bandaríska hersins, sem afrekaði það að verða fyrsta flug sögunnar umhverfis Jörðina. Nítján dögum áður hafði leiðangrinum tekist að fljúga frá Skotlandi til Íslands en lending Svíans Eriks Nelsons á Hornafirði þann 2. ágúst varð fyrsta flug flugvélar yfir úthafið til Íslands.
Hnattflugið tók nærri sex mánuði en það hófst í Seattle þann 5. apríl árið 1924. Flugvélarnar sem lögðu af stað voru upphaflega fjórar og kölluðust Douglas World Cruiser. Ein brotlenti í Alaska á fyrstu dögum ferðalagsins, önnur neyddist á fluginu til Íslands til að nauðlenda á Atlantshafi við Færeyjar og sökk þar og voru því aðeins tvær flugvélar eftir sem náðu til Íslands. Óhöppin ollu þó ekki mannskaða en leiðangrinum fylgdu alls sjö herskip, sem mynduðu einskonar öryggiskeðju á fluginu yfir úthöfin.

Eftir að flugvélunum tókst að fljúga frá Íslandi til suðurodda Grænlands var beðið þar í þrjá daga áður en flogið var norðar með vesturströnd Grænlands. Þann 31. ágúst var svo flogið áfram til Labrador, 3. september lentu flugvélarnar í Nova Scotia og þann 6. september náði leiðangurinn til Boston í Bandaríkjunum.
Hringnum var svo lokað í Seattle þann 28. september, eftir 175 daga hnattreisu og 371 flugtíma. Flugvélarnar komu við í 28 löndum á leiðinni og var lengsta stoppið á Íslandi. Í áhöfn „New Orleans" voru flugmaðurinn Erik Nelson og vélamaðurinn John Harding en um borð í „Chicago" voru flugmaðurinn Lowell H. Smith og vélamaðurinn Leslie P. Arnold.

Flugvélarnar tvær, sem komust umhverfis hnöttinn, eru báðar varðveittar. „Chicago" er til sýnis á Smithsonian-safninu í höfuðborginni Washington. „New Orleans" er í vörslu Museum of flying á Santa Monica-flugvelli í Kaliforníu. Þar voru Douglas-verksmiðjurnar staðsettar en þær smíðuðu flugvélarnar sérstaklega fyrir leiðangurinn.
Flugvélin „New Orleans", sem Erik Nelson flaug fyrst til Íslands, hefur þó ekki verið sýnd opinberlega síðan árið 2002. Hún var þá tekin í sundur og sett í geymslu þegar safnið var flutt í ný húsakynni á flugvallarsvæðinu. Bandarísk safnayfirvöld og flugsafnið í Santa Monica komust þá að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að varðveisla „New Orleans" kallaði á sérstakt loftkælt og rakastýrt húsnæði, sem safninu hefur ekki tekist að fjármagna.

Í nýlegri frétt staðarmiðils í Santa Monica segir að það standi þó til bóta. Flugsafnið sé núna að leita samstarfsaðila til að kosta verkefnið. Það velti þó mikið á hvað borgaryfirvöld í Santa Monica vilji gera. Þau stefna hins vegar að því að loka flugvellinum í árslok 2028.
Athugasemd: Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar var sagt að flugvélarnar hefðu flogið frá Reykjavík þann 18. ágúst 1924. Þann dag gerðu flugmennirnir tilraun til flugtaks frá ytri höfninni í Reykjavík, sem mistókst, og skemmdust báðar flugvélarnar vegna þungrar undiröldu. Viðgerðir á flugvélunum töfðu því brottför frá Reykjavík til 21. ágúst en nánar um leiðangurinn má lesa um á heimasíðu Flugsafn Íslands.
Frétt Stöðvar 2 í maí um hnattflugið má sjá hér: