„Eins og við öllum vitum hafa verið stórar hugmyndir, nú erum við komin með praktíska leið til að leysa málin til framtíðar fyrir knattspyrnu sem og frjálsíþróttir. Ég fagna þessu bara mikið og innilega,“ bætti Freyr við.
„Ég hef átt virkilega gott samtal við Þorvald (Örlygsson, formann Knattspyrnusamband Íslands) og Vöndur (Sigurgeirsdóttur) forvera hans. Það var komið að því að, eins og fram hefur komið, KSÍ væri komið upp við vegg. Við formennirnir vorum sammála um að finna lausn sem gæti gengið fyrir bæði.“
„Höfum verið hér í sambúð sem hefur gengið eins og sumar sambúðir geta farið. Nú fær hvor sitt heimili sem er betra fyrir íþróttafjölskylduna þegar til lengri tíma er litið.“
Hvað varðar nýtt heimili frjálsíþrótta
„Við vonumst til að við getum séð Smáþjóðarmeistaramót á Íslandi 2028 sem þýddi að völlurinn þyrfti að vera kominn 2027. Með öðrum orðum, það eru þrjú sumur.“
„Við erum að vonast til að hér verði samt hægt að hlaupa áfram næstu árin á hringbrautunum. Við erum með Þjóðarhöllina hér í Laugardalnum og leikvang í Mjódd sem ÍR hefur með að segja. Við reynum að halda niðri í okkur andanum, erum búin að bíða í svo afskaplega mörg ár með að sjá einhverja framtíðarlausn svo við bíðum þessi ár í viðbót þangað til þetta er komið.“
Að lokum var Freyr spurður hvort það væri einhver hræðsla að Frjálsíþróttsambandið myndi enda utan gátta þegar uppbygging á nýjum knattspyrnuvelli færi af stað í Laugardalnum.
„Hreint alls ekki. Það er það sem viljayfirlýsingin er afskaplega skýr um. Treysti að núverandi og framtíðar stjórnvöld muni standa við þau orð sem hér hafa verið sett á blað og skrifað undir. Held að við vitum öll hversu mikilvægt það er að hafa aðstöðuna í lagi og þetta eru áratuga framkvæmdir sem er verið að leggja upp í svo við erum viss að þetta verði leyst.“
Viðtalið við Frey má sjá í heild sinni ofar í fréttinni.