Næsta lægð nálgast úr suðvestri Atli Ísleifsson skrifar 17. september 2024 07:10 Spáð er hita á landinu á bilinu sjö til sautján stig. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir vestlægri átt í dag, fimm til þrettán metrum á sekúndu, og er spáð björtu og fremur hlýju veðri á Norðaustur- og Austurlandi, en að verði skýjað og sums staðar smávæta í öðrum landshlutum.
Á vef Veðurstofunnar kemur fram að lægð við norðausturströndina fjarlægist nú, en næsta lægð nálgist úr suðvestri í kvöld. Þá snýst í suðaustlæga átt með rigningu um mest allt land. Spáð er hita á bilinu sjö til sautján stig og verður hlýjast austantil. „Lægðin fer norðaustur yfir land á morgun með strekkings vindi og rigningu. Úrkomulítið norðaustantil á landinu fram eftir degi og þar gæti hiti náð 16 til 17 gráðum. Í kjölfar lægðarinnar snýst vindur í norðvestan- og vestanátt, það styttir smám saman upp sunnan heiða og kólnar heldur,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðlæg eða breytileg átt, víða 10-15 m/s og rigning, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast norðaustantil. Snýst í vestlæga átt seinnipartinn, dregur úr vætu og kólnar. Á fimmtudag: Suðvestan 3-10 og bjart með köflum, en skýjað og sums staðar dálítil væta vestanlands. Á föstudag: Fremur hæg suðaustlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum við suður- og vesturströndina, annars bjart að mestu. Hiti breytist lítið. Á laugardag og sunnudag (haustjafndægur): Austanátt og dálítil rigning með köflum. Hiti 3 til 10 stig. Á mánudag: Breytileg átt og rofar til.
Veður Mest lesið Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Sextán látin: Skotmennirnir feðgar Erlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Fleiri fréttir Lægðin á undanhaldi Víða allhvass vindur og rigning Siggi stormur spáir rauðum jólum Hellidemba í kortunum og líkur á þrumum Stormur gengur yfir sunnan- og vestanvert landið Austan stormur og gular viðvaranir á morgun Hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Bæta við gulri viðvörun á Vestfjörðum og miðhálendi Hvasst sunnantil og víða rigning eða slydda Hvassviðri syðst á landinu Smá rigning eða slydda víða Hiti gæti náð upp undir 10 gráður Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands Bjart sunnan- og vestanlands en él norðan- og austantil Allhvasst syðst en hægari vindur annars staðar Bjartviðri suðvestantil en hvasst suðaustanlands Blæs hressilega af austri Stormur í kortunum Snjódýptin geti náð fjörutíu sentimetrum Gul viðvörun vegna snjókomu Snjókoma í kortunum Kuldinn bítur í kinnar landsmanna Slær í storm suðaustantil en höfuðborgarsvæðið í skjóli Allvíða él eða skúrir og flughált víða um land Hlýnar í veðri og gæti orðið flughált Vara við flughálku í fyrramálið Skúrir á víð og dreif og hiti að sex stigum Hefðbundin lægð með rigningu og allhvössum vindi Hvít jörð á höfuðborgarsvæðinu og víðar Frost og víða fallegt vetrarveður Sjá meira