Innlent

Lausir hundar hafi drepið fleiri kindur

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Vilhelm

Í gær uppgötvaðist að hundar hafi gengið lausir í Borgarfirði og drepið kindur eða flæmt þær úti í skurði. Á bænum Höll í Þverárhlíð fann Grétar Þór Reynisson bóndi níu dauðar kindur í gær og eina helsærða.

Skessuhorn greinir frá þessu en samkvæmt umfjöllun þeirra segir Grétar að óyggjandi sé að um hunda sé að ræða. Aðfarirnar þegar tófa leggst á fé séu gjörólíkar.

Grétar í Höll segir að aðfarirnar hafi verið skelfilegar. Sumar ærnar hafi verið flæmdar út í læk og drukknað en aðrar verið bitnar. Þá séu einnig vísbendingar um að hundarnir hafi gert usla í fé á fleiri bæjum. Meðal annars á Glitstöðum í Norðurárdal og Högnastöðum í Þverárhlíð.

Jafnframt segir hann að vart hafi orðið vði hundana í fé á Högnastöðum í gærkvöldi og bæði lögreglu og dýraeftirlitsmanni Borgarbyggðar gert viðvart. Í samtali við Skessuhorn segist hann ekki geta fullyrt um að búið sé að ná hundunum en að sjálfur hafi hann verið fram á nótt að huga að sínu fé.

Hann hafi opnað túnhliðið hjá sér í gærkvöldi og talsvert af fénu strax skilað sér heim í tún. Í dag verði svo smalað og talið í fjárhópnum en Grétar óttast að fleiri kindur liggi í valnum og leitað verður frekar í dag.

Í umfjöllun Skessuhorns kemur fram að tveir ársgamlir hundar séu grunaðir um verknaðinn en auglýst var eftir þeim fyrir fimm dögum síðan. Þeir hefðu verið á bæ í Norðurárdal en látið sig hverfa frá eigendum sínum. Auglýst hafi verið eftir þeim á Facebook-hóp sveitarinnar en þeir ekki skilað sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×