Íslenski boltinn

Farinn til Tene og er ekkert að stressa sig

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arnór Smárason skilur sáttur við langan og farsælan feril. Hann er ekki að flýta sér að taka ákvörðun varðandi næstu skref.
Arnór Smárason skilur sáttur við langan og farsælan feril. Hann er ekki að flýta sér að taka ákvörðun varðandi næstu skref. Vísir/Einar

Arnór Smárason hætti nýverið knattspyrnuiðkun eftir langan og farsælan feril. Hann skilur sáttur við og er lítið að stressa sig á framtíðinni, enn sem komið er.

Arnór lék sinn síðasta leik er ÍA mætti Val í lokaumferð Bestu deildarinnar. Það var jafnframt lokaleikur Birkis Más Sævarssonar, fyrrum félaga hans hjá Hammarby.

Fjölskylda Arnórs kom honum þá á óvart með stórum borða í stúkunni. Það var því sérstök stund.

„Ég reiknaði ekki með þessu. Þetta var æðisleg stund. Það var fljótt í leiknum sem ég var hættur að pæla í því hver staðan í leiknum væri. Maður var bara að njóta augnabliksins með mínu fólki í stúkunni sem hefur stutt mig í gegnum allan minn feril. Ég var mjög þakklátur fyrir þetta augnablik,“ segir Arnór.

Fjölskylda Arnórs kom honum á óvart og var íklædd treyjur liða sem hann lék með á löngum ferli sínum.Mynd/Jón Gautir Hannesson

Kaflaskil eru því hjá Arnóri í hans lífi. Hvað framtíðina varðar er hann þó ekki mikið að stressa sig. Hann er farinn í sólina á Tenerife og leyfir framhaldinu að ráðast.

„Ég mun klárlega vera áfram í kringum knattspyrnu. Það er alveg á hreinu. Þetta er það sem ég hef gert öll þessi ár. Þetta er það sem ég kann og það sem ég hef áhuga á,“ segir Arnór og bætir við:

„Við fjölskyldan ætlum bara að byrja á því að fara í smá frí til útlanda núna í tvær vikur að njóta og anda rólega,“

„Það er allt opið með framhaldið og mér finnst það spennandi. Ég hef bara lifað þannig eiginlega allan minn feril. Sem fótboltamaður veistu aldrei hvað gerist í næstu viku hvað er að fara gerast, fyrr en samningur er kominn á borðið hér eða þar. Þetta er ekkert nýtt fyrir mér. Ég er mjög rólegur en vil velja rétt, mitt næsta skref, hvar sem það verður,“ segir Arnór.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×