Reyndi að brjótast inn með exi Jón Þór Stefánsson skrifar 1. desember 2024 07:36 Lögreglan handók mann sem reyndi að brjótast inn í hús með exi. Vísir/Vilhelm Maður var handtekinn í nótt eða gærkvöldi eftir að hann reyndi að brjótast inn í hús með exi. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Fram kemur að manninum hafi verið meinaður aðgangur að húsnæði, og í kjölfarið hafi hann átt að hafa tekið upp exi og reynt að brjóta sér leið inn í húsið með því að brjóta rúðu með exinni. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa. Þá segir að málið sé til rannsóknar. Í dagbókinni er einnig greint frá því að óskað hafi verið eftir aðstoð lögreglu vegna manns sem hafði ráðist á dyraverði í miðbænum. Sá var handtekinn, en neitaði að segja til nafns. Hann var vistaður í fangageymslu þangað til hann verður viðræðuhæfur. Jafnframt var lögreglu tilkynnt um vinnuslyss þar sem starfsmaður skar sig á fingri. Sá var fluttur á bráðamóttökuna til aðhlynningar. Í umdæmi lögreglustöðvar 2, sem sér um mál í Hafnarfirði og Garðabæ, ók ökumaður á umferðarskilti. Sá er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og lyfja. Hann var handtekinn, en látinn laus að skýrslutöku lokinni. Lögreglunni á lögreglustöð 4, sem sér um Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ, var tilkynnt um slagsmál utandyra. Einn var handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar málsins. Sá er grunaður um líkamsárás, eignaspjöll og vörslu fíkniefna.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn Sjá meira