Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði bjart með köflum austantil.Frost verður á bilinu núll til sjö stig, minnst við sjávarsíðuna.
„Á morgun, miðvikudag er svo útlit norðan- og norðvestankalda eða -strekking með éljum á Norður- og Austurlandi, en annars bjartviðri, hvassast á Suðausturlandi. Áfram frost um allt land.
Á fimmtudagsmorgun lægir um tíma, en ný lægð nálgast úr suðri og gengur því í austan- og suðaustanátt með snjókomu eða slyddu síðdegis, en rigningu syðst og hlýnar smám saman,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag: Norðvestan og norðan 5-13 m/s og dálítil él, en bjart með köflum sunnantil. Frost 2 til 12 stig, kaldast inn til landsins.
Á fimmtudag: Fremur hæg norðvestlæg átt, svalt í veðri og dálítil él framan af degi, en gengur síðan í suðaustan 10-18 m/s með snjókomu eða slyddu, en rigningu við ströndina, fyrst suðvestanlands, Hægt hlýnandi veður.
Á föstudag: Ákveðin vestlæg átt með éljum og kólnandi veðri, en styttir upp austanlands. Lægir og rofar til um kvöldið.
Á laugardag (vetrarsólstöður): Stíf norðlæg átt og snjókoma eða él, bjart með köflum sunnan heiða. Talsvert frost um land allt.
Á sunnudag: Útlit fyrir kalda norðanátt með éljum, en bjartviðri sunnantil.
Á mánudag (Þorláksmessa): Líklega hvassviðri með snjókomu, slyddu eða éljagangi.