Áfram norðaustanhríð og appelsínugular viðvaranir Atli Ísleifsson skrifar 20. janúar 2025 07:15 Appelsínugilar og gular viðvaranir eru í gildi fram eftir degi. Veðurstofan Gera má ráð fyrir nokkuð hvassri norðaustanátt með hríðarveðri á Norðaustur og Austurlandi í dag, en éljum norðvestantil. Lægðin sem stjórnar veðrinu er fyrir sunnan land og hún fjarlægist smám saman.
Á vef Veðurstofunnar kemur fram að appelsínugular viðvaranir séu áfram í gildi austantil vegna hríðarinnar. Á Austurlandi að Glettingi er viðvörununin í gildi til klukkan 14 í dag en til miðnættis á Austfjörðum. Hættustig vegna snjóflóðahættu er í gildi á Seyðisfirði og Neskaupstað og hefur þar verið gripið til rýminga, en óvissustig er annars í gildi á Austfjörðum. Þá eru gular viðvaranir til í gildi á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra , Norðurlandi eystra, Miðhálendi og Suðausturlandi fram eftir degi. „Á morgun lægir og léttir víða til, en norðaustanlands er spáð lítilsháttar éljum. Kólnandi veður, frost 1 til 10 stig annað kvöld, mest í innsveitum. Á miðvikudag hvessir af suðaustri með stöku éljum við suðvestur- og vesturströndina. Hægari vindur annars staðar og á Norður- og Austurlandi er búist við björtu veðri og talsverðu frosti,“ segir í hugleiðingum veðurfræðins. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Minnkandi norðanátt, hæg breytileg átt seinnipartinn. Skýjað með köflum og stöku él norðaustantil fram eftir degi. Kólnandi veður, frost 1 til 10 stig um kvöldið. Á miðvikudag: Suðaustan 5-13 m/s, víða bjartviðri og kalt, en 10-18 við suðvestur- og vesturströndina, dálítil él og hiti um eða yfir frostmarki. Á fimmtudag: Austan og suðaustan 5-15, hvassast syðst. Slydda, rigning eða snjókoma með köflum sunnan- og vestanlands, hiti kringum frostmark. Að mestu þurrt annars staðar og frost víða 0 til 5 stig. Á föstudag: Austlæg eða breytileg átt með snjó- eða slydduéljum í flestum landshlutum. Frost 2 til 8 stig, en hiti nálægt frostmarki austanlands. Á laugardag og sunnudag: Breytileg átt og él á víð og dreif. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið Sagt að njóta ótruflaðrar ástar í Venesúela Innlent Látinn fara eftir að hafa neitað Trump um sverð í eigu Eisenhower Erlent „Mér finnst þeir vera að taka frá mér lífið“ Innlent Óljóst hvort Kínverjarnir geti sótt vélina sína Innlent Segist breyttur maður og biðlar til dómarans Erlent Nafngreina árásarmanninn í Manchester Erlent Hamas liðar vilja ekki afvopnast Erlent Bugun þar til farið var í fasta fáliðun á föstudögum Innlent Rauk upp úr flugvél Jet2 Innlent Flugvellinum í München lokað vegna drónaumferðar Erlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir og allt að 45 metrar á sekúndu í hviðum Hægviðri og víða bjart Skúrir og áfram milt í veðri Suðlægar áttir og úrkoma í flestum landshlutum Sunnan strekkingur og vætusamt Allhvass vindur sunnan- og vestanlands og rigning Fyrsta haustlægðin mætt til landsins Von á mesta vindinum í marga mánuði Búast við auknu álagi á fráveitu vegna mikillar úrkomu Röð lægða með hefðbundnu haustveðri Lægðagangur næstu daga býður upp á sígilt haustveður Strekkingsvindur og fremur vætusamt næstu daga Vaxandi vindur þegar líður á daginn Grunn lægð yfir landinu í dag en suðlægir vindar á morgun Víða kaldi og allhvasst en lægir smám saman í dag Gular viðvaranir og svalri norðanátt beint til landsins Slydduél norðantil en þurrt og bjart sunnan heiða Kólnar í kvöld og allvíða næturfrost Kólnar þegar líður á vikuna Milt veður og víða væta Rigning með köflum víðast hvar Blautt víðast hvar Dálítil rigning og lægðir á sveimi Væta með köflum og dregur úr vindi Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Hvasst og samfelld rigning austast Má reikna með vatnavöxtum suðaustantil Rigning í dag Víðast hægur vindur og hiti að fimmtán stigum Rigning norðan- og austantil en bjart suðvestanlands Sjá meira