Liverpool úr leik eftir tap gegn liði Guð­laugs Victors

Ágúst Orri Arnarson skrifar
FotoJet (58)

Liverpool er úr leik í FA bikarnum eftir 1-0 tap í fjórðu umferð, á útivelli gegn B-deildarliðinu Plymouth Argyle. Íslenski landsliðsmaðurinn og fyrrum leikmaður Liverpool, Guðlaugur Victor Pálsson, kom inn af varamannabekknum og sá til þess að mark Plymouth Argyle hélst hreint.

Fyrri hálfleikur var fremur tíðindalítill. Liverpool hélt vel í boltann en átti erfitt með að brjóta niður vörn heimamanna, sem voru beinskeyttari en gestirnir og sköpuðu sér fínar stöður úr skyndisóknum.

Harvey Elliott gaf víti

Það dró hins vegar til tíðinda snemma í seinni hálfleik þegar Harvey Elliott, miðjumaður Liverpool, hoppaði á móti skoti sóknarmanns með báðar hendur upp í loft.

Boltinn fór í hönd og dómarinn dæmdi réttilega vítaspyrnu, sem Ryan Hardie skoraði örugglega úr. Hann var svo næstum því búinn að tvöfalda forystuna skömmu síðar, en skaut í stöngina.

Ryan Hardie skoraði úr vítaspyrnunni og var næstum því búinn að setja annað mark skömmu síðar.Dan Mullan/Getty Images

Guðlaugur settur inn í seinni hálfleik

Guðlaugur Victor Pálsson kom svo inn á fyrir Plymouth Argyle eftir tæpan sjötíu mínútna leik þegar einn af þremur miðvörðunum meiddist.

Hann þurfti að hafa fyrir hlutunum enda var Liverpool í sókn nánast allan tímann sem Guðlaugur spilaði, en þrátt fyrir það tókst gestunum ekki að skapa sér nógu gott færi til að setja jöfnunarmark.

Hazard hetjan undir lokin

Argyle-menn vörðust vel og nutu líka hjálpar frá öflugum markverði, Conor Hazard, sem stoppaði meðal annars stórgott skot frá Diogo Jota og skalla af örstuttu færi frá Darwin Nunez í uppbótartíma.

Síðasta varslan hans var svo tilraun á markið frá Caomhin Kelleher, markverði Liverpool, sem fór fram í síðustu sóknina og átti fínan skalla eftir hornspyrnu.

Hetjulegur uppbótartími hjá Hazard og leiknum lauk 1-0. Liverpool er þar með úr leik í FA bikarnum. Plymouth Argyle verður hins vegar í pottinum þegar dregið er í sextán liða úrslit á morgun.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira