Innlent

Björguðu dreng úr gjótu

Jón Þór Stefánsson skrifar
Mynd frá vettvangi.
Mynd frá vettvangi. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu

Drengur festist í gjótu í síðustu viku og þurfti slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu að bjarga honum. Hann komst undan nær óslasaður.

Greint er frá þessu á Facebook-síðu slökkviliðsins, en þar er einnig birt mynd af björgunarafrekinu.

Fram kemur að slökkviliðið hafi beitt vökvaglennum og lyftipúðum til að færa til grjót svo hægt væri að bjarga honum undan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×