Erlent

Ógnarúlfur risinn upp frá dauðum

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Tveir hvolpar sem líkjast tegundinni Dire wolf, eða því sem hefur verið nefnt ógnarúlfur á íslensku. Þeir voru búnir voru til á rannsóknarstofu í Bandaríkjunum. 
Tveir hvolpar sem líkjast tegundinni Dire wolf, eða því sem hefur verið nefnt ógnarúlfur á íslensku. Þeir voru búnir voru til á rannsóknarstofu í Bandaríkjunum.  vísir/AP

Ógnarúlfur sem dó út fyrir um tíu þúsund árum er sagður risinn upp frá dauðum. Vísindamenn líftæknifyrirtækisins Colossal Biosciences frá Dallas segja þetta í fyrsta sinn sem útrýmingu tegundar er snúið við með góðum árangri.

Þrír hvolpar eru komnir í heiminn eftir genatilraun sem byggði á rannsókn á árþúsunda gömlu erfðaefni úlfsins sem fannst í tönn og höfuðkúpu. Sama fyrirtæki skoðar sambærilegar tilraunir með loðfíl, dúdú-fugl og fleiri tegundir. Hvolparnir eru nú þriggja til sex mánaða gamlir og sagðir við góða heilsu.

Hér eru þeir Romulus og Remus sem eru þriggja mánaða gamlir. Úlfar sem líkjast þeim gengu síðast um jörðina fyrir yfir tíu þúsund árum.vísir/AP

Beth Shapiro, vísindamaður hjá Colossal Biosciences, segir úlfinn útdauða náskyldan nútímaúlfi. Hægt hafi verið gera ákveðnar breytingar á erfðaefni þeirra til að líkja eftir ógnarúlfi í kjölfar rannsóknar á beinunum.

„Ógnarúlfar eru stærri og vöðvameiri og hafa ljósan feld. Þetta og fleira sést af steingervingunum. Við leituðum að afbrigðum DNA-raða sem við teljum að hafi leitt til þessara einkenna. Síðan breyttum við gráúlfafrumum svo þær innihéldu þessi afbrigði ógnarúlfsins. Síðan klónuðum við þessar frumur og sköpuðum ógnarúlfana okkar,“ segir Beth og útskýrir ferlið í samtali við AP-fréttaveituna.

Vísindamennirnir notuðust við þrettán þúsund ára gamla tönn og sjötíu og tvö þúsund ára gamla hauskúpu við rannsókn á erfðaefni úlfsins. Einhverjir kannast eflaust við tegundina úr þáttunum Game of Thrones þar sem þeir spiluðu nokkuð stóra rullu. Einn hvolpurinn var enda nefndur Khaleesi, með vísan til persónu þáttanna.

Ógnarúlfurinn svipar um margt til hefðbundins úlfs en er þó stærri, sterkari og með sterkbyggðan kjálka. Umsjónarmaður úlfanna segir veiðieðlið þegar komið í ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×