Á 8. holu Augusta vallarins í Georgíu sló Homa boltanum í rassinn á starfsmanni sem gáði ekki að sér. Homa brást illa við og hrópaði á starfsmanninn óheppna.
This was Max Homa on the par 5 8th hole at Augusta today. There’s just so much to unpack here…I can’t stop laughing😭😭 pic.twitter.com/cwv9I4cWrM
— Braiden Turner (@bturner23) April 11, 2025
Þrátt fyrir þetta óhapp fékk Homa par á 8. holunni. Hann lék fyrsta hringinn á tveimur höggum yfir pari en lék á tveimur höggum undir pari í gær og komst í gegnum niðurskurðinn. Bandaríkjamaðurinn er í 27. sæti mótsins.
Homa lenti í 3. sæti á Masters í fyrra. Hann lék þá á fjórum höggum undir pari og var sjö höggum á eftir sigurvegaranum Scottie Scheffler.
Homa, sem er í 81. sæti heimslistans, er að keppa á sínu sjötta Masters-móti.
Bein útsending frá þriðja degi Masters hefst klukkan 16:00 á Stöð 2 Sport 4. Hitað verður upp fyrir þriðja daginn frá klukkan 15:30.