Lífið

Sungu Húsa­vík á Húsa­vík með stúlknakórnum

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Þríeykið um borð í Sylvíu með Stúlknakór Húsavíkur að syngja um Húsavík, hvalina og mávana.
Þríeykið um borð í Sylvíu með Stúlknakór Húsavíkur að syngja um Húsavík, hvalina og mávana.

Tónlistarmyndbandið fyrir „Húsavík (My Hometown)“ í flutningi Remember Monday, sem keppir fyrir hönd Bretlands í Eurovision 2025, er komið út. Myndbandið er tekið upp á Húsavík og syngur stúlknakór Húsavíkur með þríeykinu.

Myndbandið hefst á sólríkum degi á Húsavík þar sem tvær stúlkur leika sér saman í fótbolta á bryggjunnni. Sjómaður, leikinn af Stefáni Pétri Sólveigarsyni, stingur þá höfðinu út um glugga á veiðibát og býður góðan dag og geimfari á dekki veifar honum.

„Stelpur, ég er svo ótrúlega stoltur af ykkur. Bara muna: Syngja með hjartanu,“ segir gulljakkafatalæddi karakterinn Óskar Óskars­son, sem Sigurður Ill­uga­son og sjómaðurinn birtist svo aftur og býður fólk velkomið til Húsavíkur. 

Stúlknakórinn hefur lagið um borð í bátnum Sylvíu og Remember Monday taka síðan keflinu í ábreiðu sem breytir ekki miklu frá upprunalegu útgáfunni. Í myndbandinu má síðan sjá þríeykið skoða sig um í bænum og fara á Eurovision-safnið sem er þar.

Skemmtu sér konunglega á Húsavík

Keppendum í Eurovision í ár býðst að taka ábreiðu af lagi að eigin vali, sem svo verður birt á opinberum miðlum keppninnar. Remember Monday valdi „Húsavík“ og lýstu því sem sinni fyrstu ósk að fá að taka það upp á sjálfri Húsavík – með kórnum sem kom fram á Óskarsverðlaununum árið 2021.

„Það hefur lengi verið draumur okkar að heimsækja Húsavík,“ sögðu Lauren Byrne, Holly Hull og Charlotte Steele, meðlimir hljómsveitarinnar, í tilkynningu fyrr í mánuðinum.

„Síðan Eurovision-myndin kom út hefur okkur dreymt um að koma þangað – og nú hefur keppnin sjálf gefið okkur tækifæri til að láta þann draum rætast. Við erum í skýjunum yfir því að fá að syngja með þessum ótrúlega stúlknakór frá Húsavík.“

Tónlistarmyndbandið er unnið af Film Húsavík og Castor Miðlun fyrir BBC. Leikstjóri er Rafnar Orri Gunnarsson, Örlygur Hnefill Örlygsson er framleiðandi og tökustjórn annast Elvar Örn Egilsson.

„Við skemmtum okkur konunglega að taka þetta upp í Húsavík, vonandi elskið þið þetta jafnmikið og við,“ skrifar þríeykið í ummælum við Youtube-myndbandið.

Stúlknakór Húsavíkur syngur fallegan inngang að ábreiðu þríeykisins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.