Fá loks að halda sigrinum sem þrjú lið mótmæltu Sindri Sverrisson skrifar 28. apríl 2025 11:31 Patrick Drewes fékk kveikjarara í höfuðið frá stuðningsmanni Union Berlín, í útileik með Bochum þann 14. desember. Getty/Maja Hitij Bochum á enn von um að halda sér uppi í þýsku 1. deildinni í fótbolta nú þegar liðið er öruggt um þrjú stig úr leik fyrir fjórum mánuðum við Union Berlín sem reyndar endaði 1-1.
Hlé var gert á leik liðanna í desember eftir að stuðningsmaður Union Berlín kastaði kveikjara í höfuð Patrick Drewes, markvarðar Bochum. Staðan var þá orðin 1-1 en eftir hálftíma langt hlé var niðrustaðan sú að Drewes gæti ekki haldið áfram leik. Dómarinn tók hins vegar þá ákvörðun að leikurinn skyldi kláraður og fór þá útileikmaður Bochum í markið þar sem að liðið hafði klárað sínar skiptingar. Hvorugt liðanna sýndi því hins vegar áhuga að skora eftir þetta. Þýska knattspyrnusambandið dæmdi svo Bochum 2-0 sigur vegna málsins en Union Berlín, Holstein Kiel og FC St. Pauli áfrýjuðu þeirri niðurstöðu. Nú er aftur á móti ljóst að ákvörðunin mun standa. Bochum er þó áfram neðst í deildinni en með 21 stig þegar þrjár umferðir eru eftir, stigi á eftir Kiel og fjórum stigum frá Heidenheim sem er í 16. sæti en það er svokallað umspilsfallsæti. Bochum er átta stigum frá næsta örugga sæti en á raunhæfa möguleika á að komast upp fyrir Heidenheim og í umspil um að halda sér í efstu deild.
Þýski boltinn Mest lesið Åge Hareide látinn Fótbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega að líta í kringum mig“ Körfubolti Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Fótbolti Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Fótbolti „Svo lengi sem það er ekki jákvæð og góð umfjöllun um okkur erum við sáttir“ Körfubolti Dagskráin í dag: Píla og Álftanes með nýjan þjálfara Sport „Ánægður að spila ekki betur en þetta en vinna samt“ Körfubolti Fleiri fréttir Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt Napoli í úrslit í Sádi-Arabíu Åge Hareide látinn Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn „Við þurfum bara að keyra á þetta“ Segir Nóel Atla frábært dæmi um það þegar hlutirnir gangi upp Glódís gæti þurft að ryðja Man. Utd og Barcelona úr vegi að úrslitaleiknum Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Liðsfélagi landsliðsmanns missti unga frændur sína í sprengingu Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ Bíður eftir kallinu frá Arnari: „Myndi segja að ég væri klár“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Fótboltamaður skotinn til bana Spilar áfram með Messi í Miami Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Varði fjögur víti til að tryggja PSG titilinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Fjórir frá hjá Blikum á morgun Benítez lét Sverri byrja og flaug áfram í bikarnum Sjá meira