Upp­gjörið: Ár­mann - Hamar 91-85 | Ár­mann leikur í Bónus deildinni á næstu leik­tíð

Árni Jóhannsson skrifar
Adama Kasper Darboe og Ármenningar eru komnir upp í Bónus deild karla í körfubolta í fyrsta skipti.
Adama Kasper Darboe og Ármenningar eru komnir upp í Bónus deild karla í körfubolta í fyrsta skipti. Ármann Körfubolti

Ármann marði Hamar í oddaleik liðanna um sæti í Bónus deild karla í körfubolta. Spennan var rosaleg og leikurinn eftir því. Réðust úrslitin ekki fyrr en í blálokin en leiknum lauk með 91-85 sigri Ármanns.

Það var áþreifanleg spenna í loftinu þegar leikurinn hófst. Bæði lið þurftu nokkrar mínútur til að stilla sig af og byrja að spila af eðlilegri getu en það voru gestirnir úr Hveragerði sem tóku frumkvæðið og gekk betur að skora. Hamar komst í 5-12 áður en Ármann rankaði við sér og fór að ná einhverju takti í sinn leik. Ármenningar nöguðu niður forskotið í tvö stig en Hamar náði að gera vel í lok leikhlutans og loka honum í stöðunni 18-23.

Ármann var vaknað og keyrði strax yfir Hamar í öðrum leikhluta. Þeir hertu vörnina sína og eins og þjálfari þeirra, Steinar Kaldal, sagði í viðtali eftir leik að þegar þeir komust inn í kerfin sín fóru skotin að vera galopin og körfurnar komu. Þeir líka hertu varnarleikinn sinn og neyddu Hamar í að taka skot sem líklega var ekki lagt upp með að taka. Úr varð að Ármann sneri leiknum sér í vil og virtist þetta ætla að vera eins og hinir leikirnir þar sem heimaliðið keyrði upp muninn og kláraði þannig leikinn. Jose Medina var samt ekki á þeim buxunum og dró sína menn áfram í fyrri hálfleik og sá til þess að Ármann var innan seilingarfjarlægðar þegar flautað var til hálfleiks í stöðunni 46-39 en munurinn hafði verið mestur 12 stig í öðrum leikhluta.

Seinni hálfleikur einkenndist af spennu, þeirri sömu og hafði gert leikmönnum erfitt fyrir í upphafi leiks. Cedrick Bowen gerði það að verkum að Ármann lifði af áhlaupið sem Hamar reyndi að setja af stað í upphafi hálfleiksins en hann skoraði megnið af stigunum sem Ármann náði í upphafi þriðja leihluta. Ármann náði svo aftur tökum á leiknum og komst í 65-51 þegar um tvær mínútur voru eftir af leikhlutanum og leit það út fyrir að leikurinn væri að fjara út hreinlega fyrir Hamar sem aftur náðu fínum kafla og löguðu stöðuna örlítið áður en leikhlutinn var úti. Ármann fór illa að ráði sínu í sínum sóknum og Hamar nýtti það. Staðan 67-59 fyrir lokaleikhlutann.

Hamar náði aftur að gera vel og nagaði niður forskotið og þegar þrjár mínútur voru liðnar af fjórða leikhluta var munurinn orðinn tvö stig, 73-71, en leikmenn Ármanns fundu heldur betur fyrir spennunni. Hamar gekk á lagið en náði aldrei að komast yfir hólinn sem þurfti. Liðin skiptust á körfum næstu mínúturnar og heimamenn náðu að halda þessu í tveggja körfu leik alveg fram á loka mínútuna þegar Jose Medina setti niður þrist til að koma muninum úr 84-79 niður í 84-82 en áður en þristurinn rataði heim vildi Ármann leikhlé en fékk ekki.

Hamar náði ekki lengra og þagar 23 sekúndur voru eftir af leiknum sendi Frosti Valgarðsson niður þriggja stiga skot sem kom muninum í 89-82 og ljóst að Hamar þurfti með sér lukkudísirnar. Þær voru hins vegar búnar að snúa bakinu við Hvergerðingum og heimamenn voru nógu svalir á vítalínunni til að ljúka leiknum. Lokastaðan 91-85 og karlalið Ármanns er komið upp í Bónus deild kvenna eins og kvennalið félagsins. 

Atvik leiksins

Frosti Valgarðsson nýtti sín skot afskaplega vel í kvöld. Eitt af þeim skotum var þegar 23 sekúndur voru eftir af leiknum en hann fékk boltann á 45 gráðunum og negldi honum niður til að setja leikinn í frysti.

Stjörnur og skúrkar

Í raun og veru er ekki hægt að velja skúrka úr hvorugu liði í kvöld. Menn seldu sig dýrt og skildu allt eftir á gólfinu. Hjá heimamönnum var Cedrick Bowen stigahæstur með 23 stig en Arnaldur Grímsson og Jaxson Baker spiluðu allar 40 mínúturnar fyrir sitt lið. Arnaldur skilaði 15-10 leik og Baker var með 20 stig og 15 fráköst. 

Hjá Hamri var Fotios Lampropoulos með 23 stig og Jose Medina var með 16 stig og 10 stoðsendingar en eftir hann fékk olnbogaskot þá hafði hann sig minna í frammi.

Umgjörð og stemmning

Frábær umgjörð og stemmningin gjörsamlega sturluð. Báðar fylkingar voru á fullu allan tímann og gerðu þennan leik að frábærri skemmtun.

Dómarar

Sigmundur Már Herbertsson, Davíð Kristján Hreiðarsson og Birgir Örn Hjörvarsson skiluðu sinni vakt af mikilli fagmennsku. Ekkert út á þá að setja.

Viðtöl:

Halldór: Það hefði verið gaman að taka þá með sér upp

Þjálfari Hamars, Halldór Karl Þórsson, var skiljanlega niðurlútur þegar náð var á hann eftir leikinn í kvöld. Hann var beðinn um að reyna að gera upp tilfinningar sínar.

„Bara svekkelsi, augljóslega. Okkur langaði rosalega upp um deild og vorum á rosalega góðu róli í deildinni til að klára þetta í deildinni sjálfri en lendum svo í svakalegum skakkaföllum. Svo náðum við bara ekki að klára þennan leik hérna. Við vorum flottir mjög lengi.“

„Já bara svekktur en það er ánægjulegt að sjá hversu flott félag Ármann er að verða. Umgjörð og stemmning til fyrirmyndar. Þjálfarar, leikmenn og stjórn geta borið höfuðið hátt enda frábært tímabil hjá þeim og vonandi það sem koma skal. Næstum því full Laugardalshöll og ég gæti ekki hrósað þeim meira hvað þeir hafa vaxið og dafnað á tímabilinu.“

Halldór var spurður að því hvort hann sæi eitthvað sérstakt sem skildi liðin að í kvöld.

„Þetta er bara eitt tvö possession til eða frá. Þeir eru að fá boltann upp í hendurnar og setja körfur þegar skotklukkan er að renna út. Við náum ekki lausu boltunum og hefðum getað gert betur í varnarfráköstum í byrjun. Heimavöllurinn skilaði þessu, þeir voru frábærir hérna í vetur og við vorum frábærir heima. Því miður náðum við ekki heimavallarréttinum því ég veit að við hefðum klárað þetta þar en því fór sem fór.“

Á þessum tímapunkti er kannski ekki tímabært að ræða framtíðina en Halldór var samt spurður að því hvað hún bæri í skauti sér.

„Við eigum bara eftir að setjast niður og ég á eftir að sjá hvað planið er. Við vorum með tvö markmið í vetur þar sem annað var að spila á heimamönnum í vetur og við vorum oft með níu heimamenn á skýrslu í vetur og þeir fengur allir hlutverk. Það hefði verið gaman að taka þá með sér upp og ég vona að við höldum þessum strákum og höldum áfram að byggja upp á þessum heimakjarna. Það eru ekki mörg lið sem eru að spila svona svakalega mikið á heimamönnum og ég vona að það haldi áfram. Við náum þá hinum markmiðinu að komast upp og spila þeim þar.“

Arnaldur: Ég elska þetta lið

Einn af mikilvægari leikmönnum Ármanns, Arnaldur Grímsson, var í skýjunum. Hvernig er tilfinningin að hafa náð að koma liðinu upp?

„Þetta er frábært. Þetta er það stærsta sem ég hef afrekað í körfubolta. Öll vinnan, langt tímabil og strákarnir frábærir. Það hafði enginn trú á okkur en okkur var spáð fjórða sæti eða fimmta og við náðum að klára þetta. Þetta er æðislegt.“

Hvað skilaði sigrinum í kvöld?

„Við héldum þetta bara út með góðri vörn. Ein sókn í einu, eitt stopp í einu. Maður má ekki hugsa of langt fram í tímann. Það hjálpaði okkur.“

Arnaldur var himinlifandi með stuðninginn sem liðið fékk og gat ekki beðið um meira. Hann var að lokum spurður að því hvort hann myndi ekki fara með liðinu upp.

„Ég myndi halda það. Ég elska þetta lið. Ég elska þennan stuðning.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira