Körfubolti

„Að lokum var það betra liðið sem vann“

Siggeir Ævarsson skrifar
Diamond Battles skoraði sigurkörfuna í kvöld og 20 stig alls.
Diamond Battles skoraði sigurkörfuna í kvöld og 20 stig alls. Vísir/Hulda Margrét

Diamond Battles, sem hefur verið að glíma við meiðsli meira og minna alla úrslitakeppnina, steig heldur betur upp í kvöld þegar Haukar lönduðu Íslandsmeistaratitlinum.

Battles skoraði 20 stig og setti niður síðasta vítið sem tryggði Haukum að lokum eins stigs sigur, 92-91.

Andri Már greip hana í viðtal strax eftir leik spurði hana hvernig henni liði að hafa náð að sigla titlinum í höfn.

„Guð minn almáttugur, tilfinning er ótrúleg! Við mættum til leiks og spiluðum af fullum krafti gegn Njarðvík sem er frábært lið. Þær komu til baka og þvinguðu leikinn í framlengingu en þegar allt kom til alls þá þjöppuðum við okkur saman og spiluðum sem lið. Þetta er góð tilfinning að hafa barist allt til enda og klárað þetta með sigri.“

Lokasekúndur leiksins sem og framlengingin voru ótrúlega dramatískar og minntu hreinlega á Hollywood handrit á köflum.

„Já, nokkurn veginn! Úrslitaleikur sem fór í framlengingu. Okkur leið vel, það var hart barist. Þær spiluðu frábærlega en að lokum var það betra liðið sem vann.“

Leikurinn réðst að lokum á innkasti sem tók dómarana drjúga stund að skera úr um. Battles viðurkenndi að þessar lokasekúndur hefðu tekið á taugarnar.

„Þetta reyndi aðeins á taugarnar en svona hlutir gerast í svona leikjum. Við þurfum bara að halda áfram sama hvað þeir dæma, spila bæði vörn og sókn og sækja sigurinn.“

Hún var að lokum spurð út í tímabilið og úrslitakeppnina en Haukar þurftu að fara í gegnum tvo oddaleiki til að ná lokatakmarkinu.

„Þetta hefur verið langt tímabil. Ég átti ekki mitt besta tímabil, sérstaklega miðað við að vera Bandaríkjamaður í deildinni en liðsfélagar mínir voru frábærir. Við urðum deildarmeistararar og núna Íslandsmeistarar. Eftir að hafa svo tapað tveimur leikjum í þessari seríu small þetta allt saman hjá okkur að lokum og ótrúlega sætt að sækja þennan sigur hér í kvöld.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×