Bara einn sagt af sér og það sé Úlfar Tómas Arnar Þorláksson og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa 25. maí 2025 21:06 Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri. Vísisr/vilhelm Ríkislögreglustjóri segir fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum frjálst að tjá sig svo lengi sem hann beri ábyrgð á orðum sínum. Hún segir pólitískar væringar síðustu ár hafa bitnað á löggæslustörfum hér á landi.
Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, vandaði ýmsum embættismönnum ekki kveðjuna í Spursmálum á föstudag. Úlfar sagði embætti sínu lausu á dögunum eftir að honum hafði verið tjáð að það yrði auglýst. Í viðtalinu sagði Úlfar löggæslu og landamæraeftirlit hér á landi í lamasessi og kallaði eftir því að ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu og ríkislögreglustjóri segðu af sér. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir fyrrverandi lögreglustjóra frjálst að tjá sig enda Ísland lýðræðisríki. „Ég er bara eins og allir aðrir að ég er ekkert hafin yfir gagnrýni. Við erum í þjónustu og við þurfum bara að þola það að vera gagnrýnd og menn þurfa að bera ábyrgð á orðum sínum og fyrrrum lögreglustjóri mun væntanlega gera það.“ Hann kallar einmitt eftir því að þú og ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins segi af sér hvernig blasir það við þér? „Það er nú bara eitthvað sem þarf að ræða við dómsmálaráðherra. Mér sýnist nú bara einn maður hafa sagt af sér og það er fyrrverandi lögreglustjóri.“ Ýmislegt hafi breyst frá þeim tíma sem hún fór fyrir löggæslu við landamærin. Ísland sé orðið eftirsóknarvert alþjóðlegum glæpahópum. „Það voru bara aðrar áskoranir á þeim tíma. Undir minni stjórn tókum við mansalsmálið, gjöbreyttum heimilisofbeldisnálgun sem er núna fyrirmynd í öðrum löndum. Við byrjuðum með snjalllandamærin. Við breyttum mjög mikið nálguninni í skipulagðri glæpastarfsemi. En það voru ekki sömu áskoranir á landamærunum á þeim tíma. Þá var Ísland meira transit-land, fólk var að stoppa hér til að fara annað, en núna erum við orðin áfangastaður fyrir glæpastarfsemi. Þetta var bara allt, allt, allt annar tími. Það eru meira en tíu ár síðan ég fór frá embættinu og það eru stöðugar breytingar.“ Stjórnmálin ekki hlutverk ríkislögreglustjóra Sigríður hefur þó ýmislegt við málflutning Úlfars að athuga. Hann gagnrýndi Sigríði fyrir að tala ekki til þjóðarinnar um mál sem hana skipta máli. „Fólk er með sínar áherslur. Ég tala um málefni, ég hef ekki tjáð mínar pólitísku skoðanir eða um það hvernig hlutirnir ættu að vera öðruvísi. Það sem ég hef við löggjöfina að athuga og við löggæsluna að athuga fer ég með til ráðuneytis. Við ræðum það á grundvelli lögreglustjóranna í lögregluráði mánaðarlega. Við gefum út áætlanir sem eru unnar sameiginlega af öllum embættum þó ríkislögreglustjóri taki ábyrgð á þeim. Það eru bara allir við borðið og það er sú nálgun sem ég er með. Svo getur fólk haft skoðanir á því hvort það er rétt eða rangt,“ segir hún. Breyttir tímar Úlfar sagði landamæri Íslands galopin og sakaði yfirvöld um taka ekki á þeim vanda sem þar ríkir. Sigríður minnir á að lögreglustjórar beri ábyrgð á löggæslu í sínum umdæmum. „Hins vegar hafa landamærin verið aukið viðfangsefni og það hefur breyst á örfáum árum. Þar sem það hefur fjölgað mjög mikið ferðamönnum og við erum með fleiri alþjóðlega glæpahópa sem eru að starfa hér núna. Það hefur verið sett fjármagn til lögreglustjórans og embættisins en betur má að sjálfsögðu ef duga skal.“ Úlfar gagnrýndi einnig í viðtalinu að ekki fengjust farþegalistar frá öllum flugfélögum sem lentu á Keflavíkurflugvelli. Sigríður segir að stjórnvöld eigi í viðræðum við Evrópusambandið um tvíhlíða samning varðandi miðlun PNR-upplýsinga, sem eru farþegalistarnir. Það hafi verið metið sem svo að þær væru á viðkvæmum stað. Nú sé að koma löggjöf sem ættu að koma hlutunum í samt lag. „Það er ekki eins og það væri ekki nein farþegaskoðun og auðvitað hefðum við kannski kosið að vera ekki að fjalla mikið um það í fjölmiðlum hvar okkar veikleikar eru en nú er verið að kippa þeim í lag,“ segir Sigríður. Pólitíkin hafi dregið úr skilvirkni Mikilvægar breytingar séu í farvatninu til að bregðast við breyttri heimsmynd með komu alþjóðlegra glæpahópa. „Eina leiðin til að ná þeim er að vinna með erlendum samstarfsaðilum. Það er ekkert vit í því að vera taka einhver mansalsfórnarlömb sem eru að flytja fíkniefni. Stinga þeim inn og rannsaka ekki meir. Það þarf að rannsaka málin til enda.“ Hún tekur fram að pólitík síðustu ára hafi bitnað á löggæslustörfum hér á landi. Lögreglan starfi eftir lögum sem þurfi í sumum tilvikum að breyta. „Og það sem hefur staðið löggæslunni fyrir dyrum síðast liðin ár er að við höfum haft frábæra dómsmálaráðherra, hvern á fætur öðrum en þeir hafa staldrað mjög stutt við bara út af sviptingum í pólitíkinni. Sem þýðir að mál hafa averið komin á skrið en ekki náðst að ljúka þeim.“
Landamæri Innflytjendamál Lögreglan Mest lesið Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Erlent Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Innlent Ingibjörg býður sig fram í formanninn Innlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Flughált í höfuðborginni og víðar um land Innlent Fleiri fréttir Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Sjá meira