Viðskipti innlent

Heiður Björk tekur við eftir brott­hvarf Gunnars Egils

Atli Ísleifsson skrifar
Heiður Björk Friðbjörnsdóttir er nýr forstjóri Samkaupa.
Heiður Björk Friðbjörnsdóttir er nýr forstjóri Samkaupa. Samkaup

Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, fjármálastjóri Samkaupa, verður starfandi forstjóri fyrirtækisins þar til sameining við Orkuna er yfirstaðin. Hún hefur starfað sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Samkaupa undanfarin fimm ár.

Í tilkynningu kemur fram að tilkynnt hafi verið um kaup Orkunnar á hlutum Kaupfélags Suðurnesja fyrr í mánuðinum en áætlað sé að þau gangi í gegn um leið og öllum fyrirvörum hafi verið aflétt. 

„Í framhaldi er stefnt að því að til verði eignarhaldsfélag sem starfi á sviði matvöru, orku, bílaþvottar og lyfsölu. Heiður mun stýra fyrirtækinu í samvinnu við aðra í framkvæmdastjórn. Gunnar Egill Sigurðsson hefur látið af störfum sem forstjóri eftir 23 ár hjá fyrirtækinu.

„Kaupin eru jákvætt skref fyrir Samkaup. Þau styrkja stöðu fyrirtækisins og munu opna á tækifæri fyrir okkur til að bjóða betri verð og þjónustu fyrir okkar viðskiptavini. Við erum þakklát Gunnari Agli fyrir hans störf, en hann á mjög stóran þátt í vexti og þróun fyrirtækisins,“ segir Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, nýr forstjóri Samkaupa.

Heiður Björk hefur starfað sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Samkaupa undanfarin 5 ár. Hún hefur víðtæka reynslu á sviði fjármála og hefur lokið MBA námi við Háskóla Íslands, er með BSc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og próf í verðbréfaviðskiptum.

Gunnar Egill kveður eftir 23 ár

Gunnar Egill tilkynnti fyrr í þessum mánuði að hann hefði ákveðið að láta af störfum hjá félaginu. „Ég er afar þakklátur fyrir öll tuttugu og þrjú árin sem ég hef starfað hjá Samkaupum og er stoltur af þeim árangri sem við höfum náð á smásölumarkaði um allt land. Sá árangur er aðeins til kominn vegna þess að hjá Samkaupum starfar einvala lið stjórnenda og starfsfólks með metnað fyrir starfinu og drifkraftinn sem þarf til að ná settum markmiðum. Kaupin opni nú ný tækifæri til að byggja upp enn sterkara og betra félag og ég hlakka til að fylgjast með framvindunni. Samkaup er í traustum höndum Heiðar og teymisins hennar,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×