Innlent

Lög­regla rannsakar „alvarlegt at­vik“ á hóteli

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi.
Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að lögregla hafi verið kölluð að hóteli í miðborginni á áttunda tímanum í morgun vegna „alvarlegs atviks“ sem þar hafði orðið.

Fleira um málsatvik kemur ekki fram í tilkynningunni. Rannsókn málsins sé á algjöru frumstigi og því er ekki unnt að greina frá því nánar að svo stöddu. Frekari upplýsingar verði sendar fjölmiðlum í dag, eða eftir því sem málinu vindur fram.

Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×