Innlent

Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Skák rauk upp i vinsældum meðal ungra og aldinna á meðan heimsfaraldrinum stóð.
Skák rauk upp i vinsældum meðal ungra og aldinna á meðan heimsfaraldrinum stóð. Vísir/ANTON BRINK

Þriðjungur íslensku þjóðarinnar er með reikning á skákforritinu Chess.com samkvæmt gögnum frá fyrirtækinu. Þá eru Íslendingar jafnframt virkustu notendur forritsins og fjórða stigahæsta þjóðin þar inni.

Líkt og segir á heimasíðu hins geysivinsæla skákforrits Chess.com er skák svo sannarlega alþjóðlegur leikur. Fyrirtækið birti í gær tölur þar sem notendur, virkni og stig voru flokkuð eftir þjóðum. Þó er það með þeim fyrirvara að notendur skrá sjálfir hvaða landi þeir eru frá og því gætir líklega einhverrar skekkju.

Ísland mesta skákþjóð heims

Tölurnar frá Chess.com mála Ísland upp sem líklega mestu skákþjóð heims ef þær má marka. Þeim samkvæmt er 33 prósent þjóðarinnar með reikning á síðunni en 128,503 reikningar eru skráðir íslenskir. Nágrannar okkar á Norðurlöndunum fylgja fast á hælana en fjórðungur Norðmanna er með reikning og sjötti hluti Dana og Svía.

Íslendingar og Norðmenn eru jafnframt virkustu skákmenn heimsins en á hverjum degi teflir um eitt prósent þjóðarinnar minnst eina skák á Chess.com í tölvunni eða í smáforritinu í farsíma.

Á heimasíðu Chess.com er einnig tekinn fyrir meðalstigafjöldi notenda eftir þjóðum og er þá miðað við hin svokölluðu Elo-stig sem hæfni í skák er mæld eftir í skák og hraðskák og svo meðaltal flokkanna tveggja. Þá kemur í ljós að Ísland er í fjórða sæti með meðalstigafjölda í hraðskák upp á 845 og skák upp á 825.

Besta þjóð heims að meðaltali samkvæmt Chess.com eru Seychelle-eyjar og þeim fylgja á eftir Albanía, Svartfjallaland og svo Ísland.

Gíneumaðurinn líklegastur til að leika frönsku vörnina

Meiri skemmtileg tölfræði kemur einnig fram. Samkvæmt tölum Chess.com er Frakkinn aðeins sá áttundi líklegasti til að leika frönsku vörnina. Gíneumaðurinn er sá líklegasti en það kemur heim og saman við það að opinbert mál þessarar vesturafrísku þjóðar er franska þrátt fyrir umtalsverða fjarlægð frá metrópólinu.

Hollendingar eru í tuttugasta sæti yfir þjóðirnar sem líklegastar eru til að leika hollensku vörnina og Englendingar í 26. sæti yfir þjóðirnar sem líklegastir eru til að hefja leik á ensku opnuninni. Þá er Suður-Kórea sú þjóð sem líklegust er til að leika ítalskt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×