Fótbolti

Chelsea komst á­fram og mætir Benfica sem vann Bayern

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Enzo Fernandéz lagði tvö af þremur mörkum Chelsea upp. Hið seinna fyrir Liam Delap.
Enzo Fernandéz lagði tvö af þremur mörkum Chelsea upp. Hið seinna fyrir Liam Delap. Jonathan Moscrop/Getty Images

Chelsea tryggði sér annað sæti D-riðilsins og komst áfram í sextán liða úrslit á HM félagsliða með 3-0 sigri gegn Espérance í nótt, þar mun enska liðið mæta Benfica sem vann 1-0 gegn Bayern Munchen í gærkvöldi. Bæjarar komust þó einnig áfram og mæta Flamengo, sem vann C-riðilinn.

Sigur Chelsea var afar öruggur, liðið var frá upphafi betri aðilinn og tvö mörk skiluðu sér undir lok fyrri hálfleiks. Enzo Fernández lagði upp fyrir Tosin Adarabioyo og Liam Delap, á þriðju og fimmtu mínútu uppbótartíma fyrri hálfleiks. Delap skoraði þar sitt fyrsta mark fyrir félagið. 

Tyrique George bætti svo við marki undir blálokin, á sjöundu mínútu uppbótartíma, eftir stoðsendingu Andreys Santos.

Chelsea tryggði sér þar með annað sæti D-riðilsins með sex stig en komst ekki upp fyrir Flamengo, sem gerði 1-1 jafntefli gegn LA FC og endaði í efsta sæti með sjö stig. 

Flamengo mun því mæta Bayern Munchen, sem endaði í öðru sæti C-riðilsins eftir 1-0 tap gegn Benfica í gærkvöldi.

Andreas Schjelderup tryggði Benfica sigur gegn Bayern. Alex Livesey - FIFA/FIFA via Getty Images

Bæjarar voru mun hættulegri aðilinn en fóru illa með sín færi eftir að hafa snemma undir, á þrettándu mínútu þegar Andreas Schjelderup skoraði eina mark leiksins eftir stoðsendingu Fredriks Aursnes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×