Innlent

Á­tök í Sósíal­ista­flokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffi­stofunnar

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Hádegisfréttir eru á sínum stað á slaginu tólf.
Hádegisfréttir eru á sínum stað á slaginu tólf. Vísir

Ný stjórn Sósíalistaflokks Íslands hefur sakað fyrrverandi framkvæmdastjórn flokksins um að hafa tæmt sjóði flokksins og hlaupa með þá burt. 

Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en fyrrverandi formaður framkvæmdastjórnar flokksins vísar ásökunum á bug og íhugar að höfða meiðyrðamál gegn nýrri stjórn.

Frumvarp um veiðigjöld er ekki á dagskrá þingfundar sem hófst á Alþingi klukkan tíu í morgun en þingflokksformenn ætla að funda stíft um helgina í von um að komast að samkomulagi um þinglok.

Dyrunum að Litlu kaffistofunni verður skellt í lás í dag, en söluskálinn hefur verið í rekstri nánast óslitið frá árinu 1960. Við ræðum við einn rekstraraðila sem segir blendnar tilfinningar að standa vaktina síðasta daginn en opið til þrjú í dag. 

Kristófer Ingi var hetja Blika og skoraði þrennu í endurkomusigri liðsins gegn Stjörnunni í Bestu deild karla í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×