Lífið

Kvið­dómur komst að niður­stöðu í fjórum fimm ákæruliða Diddy

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Fyrir miðju situr Sean Combs og rýnir í minnisblaðs kviðdómenda ásamt verjendum sínum.
Fyrir miðju situr Sean Combs og rýnir í minnisblaðs kviðdómenda ásamt verjendum sínum. AP/Elizabeth Williams

Kviðdómur í réttarhöldum yfir tónlistar- og athafnamanninum Sean Combs, betur þekktum sem P. Diddy, hefur komist að niðurstöðu í fjórum fimm ákæruliða.

Kviðdómurinn hafði ráðið ráðum sínum í um tólf klukkustundir þegar hann sendi dómara skeyti um að komið sér saman um ákæruliði er varða mansal og vændi en gat ekki komist að niðurstöðu um þann lið er lýtur að þátttöku Combs í skipulagðri glæpastarfsemi.

Kviðdómi sagt að halda áfram

New York Times greinir frá því að dómara hafi borist þessar upplýsingar um áttaleytið að íslenskum tíma en réttarhöldin fara fram á Manhattan. Í minnisblaði kviðdómsins hafi komið fram að meðal þeirra væru kviðdómendur með ósamræmanlegar afstöður sem ekki væri unnt að sannfæra.

Samkvæmt ákæruliðnum er varðar skipulagða glæpastarfsemi er Combs gefið að sök að hafa nýtt sér viðskiptaveldi sitt til að misnota konur kynerðislega og fjárhagslega, auk þess að fremja aðra ofbeldisglæpi og hindra framgang réttvísinnar.

Í umfjöllun New York Times kemur fram að áður en Arun Subramanian dómari tilkynnti innihald minnisblaðs kviðdómanda hafi allir átta lögmenn Combs hnappast saman í kringum skjólstæðing sinn alvörugefnir á svip. Combs sjálfur hafi hengt haus á meðan lögmennirnir rýndu í minnisblaðið og pískruðu sín á milli.

Þegar minnisblaðið hafði verið tilkynnt dómnum ráðlögðu verjendur og saksóknarar dómaranum um næstu skref. Dómari sagði kviðdómendum að halda áfram viðræðum sínum og freista þess að ná saman.

Ógeðfelldar lýsingar á ógeðfelldar lýsingar ofan

Mikið hefur verið fjallað um mál Sean Combs frá hándtöku hans í september síðastliðnum. Réttarhöldin voru sett í byrjun maí og hafa vakið mikla athygli enda eru ákæruliðir í máli þessa víðfræga tónlistarmanns hver öðrum ógeðfelldari. Auk ákæru ákæruvalda í New York-ríki hafa tugir einkamála verið höfðaðir á hendur honum, þar af þónokkur sem höfðuð voru áður en hann var ákærður. Í þeim er eru tíundaðar ásakanir um kynferðislegt ofbeldi á hendur kvenna, karla og barna niður í tíu ára aldur.

Ákæruliðirnir eru allir alvarlegir og varða langar fangelsisvistir. Endanleg refsing Combs verði hann sakfelldur er í höndum dómara. Ákæruliðurinn um skipulagða glæpastarfsemi felur í sér hámarksrefsingu lífstíðarfangelsis, sem og liðurinn um mansal með nauðung. Báðir ákæruliðir bera með sér lágmarksrefsingu upp á fimmtán ár í fangelsi. Hinir ákæruliðirnir hafa hámarksrefsingu sem nemur tíu ára fangelsisvist.


Tengdar fréttir

Sagði Diddy hafa nauðgað sér

Fyrrverandi aðstoðarkona Sean Combs, sem er gjarnan kallaður „Diddy“, segir hann hafa nauðgað sér og misþyrmt yfir átta ára tímabil þar sem hún vann fyrir hann. Hún segir meðal annars að hann hafi nauðgað henni á heimili hans árið 2010 og hann hafi þar að auki margsinnis brotið beitt hana ofbeldi.

Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“

Casandra Ventura, eða Cassie, söngkona og fyrrverandi kærasta, Sean „Diddy“ Combs, bar í gær vitni í réttarhöldunum gegn tónlistarmanninum umdeilda. Þar sagði hún meðal annars frá ofbeldi sem hann beitti hana, líkamlegu, andlegu og kynferðislegu, og að hann hafi þvingað hana til að taka þátt í dagalöngum kynlífspartíum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.