Íslenski boltinn

KA fékk færri at­huga­semdir en Crystal Palace

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sævar Pétursson er himinlifandi að fá Evrópuleikinn gegn Silkeborg norður til Akureyrar.
Sævar Pétursson er himinlifandi að fá Evrópuleikinn gegn Silkeborg norður til Akureyrar.

KA menn fá að leika Evrópuleik félagsins á heimavelli. Félagið varð að ráðast í ákveðnar framkvæmdir á svæðinu til að fá leyfi fyrir heimaleik í Sambandsdeildinni. Úttektarmaður UEFA hló þegar hann sé stúku útiliðsins.

KA menn fá að spila sinn heimaleik í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Liðið situr hjá í 1. umferð. UEFA hefur veitt félaginu sérstaka undanþágu til leikjahalds á Greifavellinum í fyrstu tveim umferðum Sambandsdeildarinnar. Fyrir tveimur árum komst KA í þriðju umferð Sambandsdeildarinnar og spilaði þá heimaleiki sína á Fram vellinum í Úlfarsárdal og á Laugardalsvellinum. KA mætir Silkeborg ytra 23. júlí og síðan verður heimaleikurinn fyrir norðan 31. júlí.

„Það sem snýr að öryggismálum þurfum við að ráðast í. Við þurftum meðal annars að klæða stúkuna og tryggja að það kæmist enginn undir hana og svona ýmis smáatriði sem við þurftum að gera. Við erum bara svo heppin og búum svo vel að það voru ábyggilega tuttugu þrjátíu sjálfboðaliðar sem komu og hjálpuðu til í einhverja viku sem við höfðum eftir að þessi möguleiki opnaðist. Við fáum því að spila hérna á Greifavellinum í Evrópu sem er hrikalega mikilvægt fyrir okkur,“ segir Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA í Sportpakkanum á Sýn í gærkvöldi.

„Við þurftum að fjarlægja ýmsa hluti sem voru innan öryggissvæðisins,“ segir Sævar. Tvær stúkur eru við völlinn fyrir norðan. Ein fyrir útiliðið og ein fyrir heimaliðið. Útiliðastúkan er ekki beint stærsta stúkan í Evrópu.

„Það var gaman þegar Skotinn kom og tók þetta út þá sagðist hann aldrei hafa séð svona útisvæði áður. En það sem var kannski skemmtilegast við þetta er að hann hafði verið vikuna á undan að taka út heimavöll Crystal Palace og sá völlur stóðst ekki úttektina en Greifavöllurinn stóðst hana. Þetta var úttekt númer 106 hjá honum og hann sagði að þetta hafi verið minnsti völlurinn sem hann hafi tekið út en gaman hafi verið að gefa honum grænt ljós.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×