Íslenski boltinn

„Síðan koma raddir um að þetta sé ekkert svo al­var­legt“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Aron Sigurðarson hefur borið uppi sóknarleik KR í sumar.
Aron Sigurðarson hefur borið uppi sóknarleik KR í sumar. Vísir/Anton Brink

Ólafur Kristjánsson, sérfræðingur Stúkunnar, fór yfir stöðu mála í Vesturbænum og þá stöðu sem KR finnur sig í þegar þrjár umferðir eru eftir af Bestu deild karla í fótbolta.

„Umræðan er mjög sérstök. Við sjáum KR núna eftir 24 leiki með 24 stig í neðsta sæti. Það tala flestir um það að þetta sé alvarleg staða. „Síðan koma raddir um að þetta sé ekkert svo alvarlegt“. Óskar (Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR) í viðtalinu – þar sem hann bítur vel frá sér – og notar sína góðu hæfileika til að svara fyrir sig bendir á að ef KR falli þá sé það því þeir séu ekki nógu góðir og það sé staða félagsins.“

„Auðvitað fer þetta inn á sálina hjá mönnum. Það að koma og performa, standa sig og standa undir einhverjum væntingum. Talið í Vesturbænum hefur alltaf verið „við erum stærstir, bestir, stærsta lið landsins.“ Sem leikmaður ertu að upplifa mismatch þarna á milli þegar þú kíkir á töfluna og sérð liðið í neðsta sæti.“

„Staðan er ekki góð. Ég rifjaði það nú einhvern tímann upp, það eru 20 og ansi mörg ár síðan ég var þátttakandi í leik upp á Akranesi, úrslitaleikurinn 1996, sem fór 4-1 fyrir ÍA. Þá komu borgarstjórinn Ingibjörg Sólrún og Björgólfur gamli heitinn, blessuð sé minning hans, í fréttum daginn eftir leik og töluðu um að þetta væri ekki nógu gott og svo framvegis. Það eru aðeins breyttir tímar í Vesturbænum.“

Klippa: Óli Kri um KR: „Síðan koma raddir um að þetta sé ekkert svo alvarlegt“

„Hins vegar ef einhver getur farið niður með KR, ef það verður raunin, held ég að það sé Óskar því hann er búinn – sáum það bara í viðtalinu, sjáum hvað hann hefur lagt upp með, hvernig hann hefur bakkað þetta upp hjá sér. Hann er þrjóskur, og þá er hann bara á þeirri vegferð að rífa KR upp aftur. En þetta er bara sama munstrið aftur og aftur og aftur.“

KR er sem stendur í neðsta sæti Bestu deildar, þremur stigum frá öruggu sæti þegar þrjár umferðir eru eftir.

Ræðu Ólafs má sjá í spilaranum ofar í fréttinni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×