Körfubolti

„Þá er erfitt að spila hér“

Kári Mímisson skrifar
Kann að fara með knöttinn.
Kann að fara með knöttinn. Vísir/Diego

Þórir Þorbjarnarson, fyrirliði KR, var sáttur með dramatískan sigur liðsins í kvöld gegn Íslandsmeisturum Stjörnunnar. KR-ingar voru í veseni langt inn í seinni hálfleikinn en unnu sig til baka í leikinn og tókst að sigra Stjörnuna 102-98 eftir framlengdan leik.

„Við erum aðallega ánægðir með sigurinn og að ná að sigra hér í kvöld. Við erum búnir að bíða lengi eftir að fá að spila, síðan í mars, þannig að mögulega var smá ryð í okkur. Ég er mjög ánægður með að við höfum náð að koma til baka eftir slæman annan leikhluta og tekist að sigla þessu heim,“ sagði afar glaður Þórir strax að leik loknum.

Þórir Guðmundur á fleygiferð.Vísir/Diego

Stjarnan tók algjörlega yfir leikinn í lok annars leikhluta og náði að bæta í forystuna í þriðja leikhluta. Liði KR gekk afar illa á þessum tímapunkti og átti fá svör við Orra Gunnarssyni og Giannis Agravanis. Giannas þurfti að fara af velli lítillega meiddur sem KR nýtti sér en það voru ansi mörg skakkaföll hjá Stjörnunni í kvöld.

„Við þurftum bara að halda áfram á þessum tímapunkti. Þetta var mjög mikið fram og til baka í fyrri hálfleik og svo var markmiðið í seinni hálfleiknum bara að ná þeim sem og við gerðum. Ég veit ekki hvað það eru margir sem fengu fimm villur í þessum leik en þetta var auðvitað hörku barátta og smá skrítinn leikur því það vantaði vissulega marga hjá þeim. Ég er virkilega ánægður með mætinguna hér í kvöld og þessa svakalegu stemminguna hér í höllinni.“

Það var vel mætt.Vísir/Diego

Þórir náði sér í fimm villur í dag en vissulega eftir fimm auka mínútur. Spurður að því hvernig tilfinningarnar hefðu verði undir lokin svara hann að honum hafi liðið vel og þakkar svo liðsfélögum sínum fyrir að hafa staðið vaktina síðustu mínútuna.

„Mér leið vel í þessari framlengingu. Þegar við vorum komnir í gang og stúkan sömuleiðis farin að láta heyra í sér þá er erfitt að spila hér. Ég klúðraði þessu bara svolítið sjálfur með því að fá þessa fimmtu villu enda er leiðinlegt að sitja og vera ekki inn á. Strákarnir gerðu þetta aftur á móti vel og kláruðu þetta.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×