Innlent

Fjöl­margir far­þegar fastir í flug­vélum á Kefla­víkur­flug­velli

Kolbeinn Tumi Daðason og Tómas Arnar Þorláksson skrifa
Mikill snjór er á suðvesturhorninu.
Mikill snjór er á suðvesturhorninu. ISavia

Mikil röskun hefur orðið á flugferðum frá landinu í morgun vegna snjókomu. Mikill fjöldi farþega er löngu kominn um borð í flugvélina og bíður tímunum saman eftir brottför. Flugrekstrarstjóri segir aðstæður afar krefjandi á Keflavíkurflugvelli. Unnið sé að því að koma vélum í loftið en öryggi sé númer eitt, tvö og þrjú. 

Á vef Isavia má sjá að frá því á miðnætti hafa aðeins fjórar vélar farið í loftið. Fjöldi véla eru enn á jörðinni en þó hefur hliði verið lokað. Í mörgum tilfellum er búið að fylla vélarnar af fólki. Flugvélar Icelandair sem áttu að fara í loftið klukkan 7:30 í morgun eru nú margar hverjar á áætlun 11:30. Óvíst er hvort sá tími komi til með að standast.

Flest flugin eru enn á áætlun en þó má sjá að til dæmis er búið að færa flug Neos til Tenerife sem átti að fara klukkan níu í morgun til klukkan 23 í kvöld. 

Isavia hvetur ferðalanga til að mæta tímanlega á Keflavíkurflugvöll vegna umferðarerfiðleika á Reykjanesbrautinni sökum snjókomunnar.

„Þetta er erfiður dagur, það er óhætt að segja það,“ segir Guðmundur Tómas Sigurðsson, flugrekstrarstjóri hjá Icelandair.

Um þúsund farþegar flugfélagsins eru fastir í flugvélum á Keflavíkurflugvelli og hafa ekki komist af stað. Sumir farþeganna hafa beðið í allt að fjórar klukkustundir.

„Aðstæður eru vægast sagt mjög krefjandi í dag,“ segir hann og að þó svo að það hafi verið búið að spá snjókomu sé staðan töluvert verri en gert hafði verið ráð fyrir. Það kyni niður snjó í Keflavík og aðstæður erfiðar á flugvellinum.

Hann segir unnið að því að koma vélum í loftið. Fimm vélar hafi komist af stað í morgun en enn sitji fimmtán til tuttugu vélar fastar og bíði eftir afísingu eða að komast frá hliði. Hann segir að gera megi ráð fyrir að farþegar sem sitji fastir séu yfir þúsund þó að hann sé ekki með nákvæma tölu. Hann segist ekki viss hversu lengi farþegar hafi beðið. Áhafnir hafi í einhverjum tilfellum átt erfitt með að komast á völlinn og það hafi haft áhrif.

Guðmundur Tómas Sigurðsson er flugrekstrarstjóri hjá IcelandairVísir

Hann segir fara nokkuð vel um farþega og áhafnir geri sitt besta til að sinna þeim og veita þeim upplýsingar. Hann segir að aðstæður verði metnar versni staðan og í versta falli komi þá til frekari seinkanna.

Hann segir Icelandir ágætlega í stakk búinn til að takast á við svona aðstæður. Afísing taki tíma en það sem helst tefji sé sköfun akbrauta á vellinum. Svo mikill snjór hafi áhrif á bremsuskilyrði og öryggi sé í fyrirrrúmi hjá öllum og það verði að tryggja það fyrst.

„Það gengur erfiðlega að tryggja viðunandi aðstæður.“

Guðmundur Tómas hvetur alla sem eiga leið til Keflavíkurflugvallar til að fara varlega, fylgjast með tilkynningum og veðurspá og meta aðstæður vel áður en lagt er af stað. Ástandið verði viðvarandi út daginn.

„Við eigum von á því að þetta gæti versnað áður en það byrjar að lagast.“

Hann segir öryggið skipta mestu í þessu samhengi.

„Við förum ekki í aðstæður sem við treystum ekki áhöfnum og farþegum í. Það er leiðinlegt að farþegar þurfi að sitja og bíða en þetta er víst það sem fylgir þessu alveg sama hvar þessar aðstæður koma upp í heiminum.“

Öll nýjustu tíðindi má lesa í vaktinni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×