Titilvörn Littlers hefst gegn reynslubolta Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. nóvember 2025 16:46 Hinn átján ára Luke Littler freistar þess að verja heimsmeistaratitilinn í pílukasti. getty/James Fearn Heimsmeistarinn Luke Littler mætir Darius Labanauskas í fyrsta leik sínum á HM í pílukasti.
Littler, sem er nýkominn upp í efsta sæti heimslistans, mætir til leiks strax í 1. umferð og etur þar kappi við hinn reynda Labanauskas. Litáinn er í 95. sæti heimslistans. Hinn 49 ára Labanauskas er fastagestur á HM og komst í átta manna úrslit 2020. Luke Humphries mætir heimsmeistara ungmenna, Ted Evetts, í 1. umferð. Humphries vann HM 2024 en hann sigraði Littler þá úrslitaleiknum, 7-4. Littler og Humphries eru ekki á sama kanti í drættinum fyrir HM 2026 og gætu því mæst í úrslitaleik mótsins. Þrefaldi heimsmeistarinn Michael van Gerwen mætir Mitsuhiko Tatsunami frá Japan í 1. umferðinni. Van Gerwen komst í úrslit HM í fyrra en tapaði fyrir Littler, 7-3. Fallon Sherrock, eina konan sem hefur unnið leik á HM, dróst gegn Dave Chisnall sem er í 21. sæti heimslistans. Beau Greaves, sem sigraði Littler á HM ungmenna á dögunum, mætir Daryl Gurney sem situr í 22. sæti heimslistans. Heimsmeistaramótið í pílukasti hefst 11. desember og lýkur með úrslitaleik 3. janúar. Venju samkvæmt fer mótið fram í Alexandra höllinni í Lundúnum. Keppendum á HM hefur verið fjölgað úr 96 í 128 og verðlaunaféð hefur einnig hækkað verulega. Sigurvegarinn fær eina milljón punda í sinn hlut, helmingi meira en Littler fékk fyrir að vinna HM í fyrra.
Pílukast Mest lesið Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Fótbolti „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Enski boltinn Hætti við að keppa út af hundinum sínum Sport Fyrrum kappaksturshetja og fjölskylda hans létust í flugslysi Sport Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum Fótbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti Åge Hareide látinn Fótbolti Besti CrossFit-maður Íslands elskar Búlluna Sport Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Fótbolti Fleiri fréttir Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld Fyrrum kappaksturshetja og fjölskylda hans létust í flugslysi „Ég finn lykt af ótta, ég sé eitthvað í augum hans“ Hætti við að keppa út af hundinum sínum KR á frábærum stað en getur ekki unnið titilinn Dallas Cowboys er enn verðmætasta íþróttalið heims Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Alexander Isak fékk sænska gullboltann Besti CrossFit-maður Íslands elskar Búlluna Hilmar Árni til starfa hjá KR „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Setti heimsmet fyrir mömmu sína Segir fjórðung í bók Óla ósannan Bardagakappi drukknaði á Amazon-svæðinu Dagskráin í dag: Píla og Álftanes með nýjan þjálfara Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega að líta í kringum mig“ „Er því miður kominn í jólafrí“ Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 93-83 | Enn taplausir í Sláturhúsinu Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt „Ánægður að spila ekki betur en þetta en vinna samt“ „Svo lengi sem það er ekki jákvæð og góð umfjöllun um okkur erum við sáttir“ „Hefðum þurft að hafa heppnina með okkur í liði“ ÍR - Valur 82-85 | Baráttusigur í Breiðholti „Sáttur að geta farið heim, borðað vel og fengið mér nokkra kalda“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Sjá meira