Sport

Littler sjóð­heitur en sá fjórði besti varð fyrir á­falli

Sindri Sverrisson skrifar
Luke Littler er vinsæll og veit af því.
Luke Littler er vinsæll og veit af því. Getty/James Fearn

Átján ára gamli heimsmeistarinn Luke Littler steig ekki feilspor gegn hinum austurríska Mensur Suljovic, sem er 35 árum eldri, á HM í pílukasti í kvöld. Einn hæst metni keppandinn féll hins vegar afar óvænt úr leik og nú eru sex af sextán efstu mönnum heimslistans úr leik á HM.

Enn eru tíu leikir eftir í 32 manna úrslitum en það hefur verið nóg af óvæntum úrslitum. Engin þó óvæntari en í kvöld þegar Stephen Bunting, sem er í 4. sæti heimslistans, tapaði fyrir James Hurrell sem er í 63. sæti listans.

Bunting var dyggilega studdur í Alexandra Palace en það sló þögn á fólkið þegar Hurrell reyndist svo stór hindrun og rúmlega það því hann vann 4-3 sigur.

Sex af sextán efstu úr leik

Þar með hafa eins og fyrr segir eftirtaldir sex af sextán efstu mönnum heimslistans fallið úr keppni:

  • Stephen Bunting (4. á heimslista)
  • Danny Noppert (6)
  • James Wade (7)
  • Chris Dobey (8)
  • Gerwyn Price (9)
  • Ross Smith (12)

Littler átti lokaleik kvöldsins og svitnaði ekki einu sinni, í afar öruggum 4-0 sigri gegn Suljovic sem gat ekki annað en hrist höfuðið og brosað þrátt fyrir tapið. Frammistaða Littler undirstrikar enn hversu sigurstranglegur hann er á mótinu en hann náði að meðaltali 107,09 og náði 180 alls níu sinnum.

Littler var með 71% nýtingu í útskotunum þar sem hann var meðal annars fjórum sinnum með yfir 100 og best 124, og viðurkenndi að hann hefði varla séð betri tölur hjá sér.

Fyrr í kvöld hélt Svíinn fúlskeggjaði Andreas Harrysson áfram að koma á óvart og sló út Ricardo Pietreczko með 4-3 sigri.

Áfram verður keppt í 32 manna úrslitum á morgun og á mánudag en á mánudagskvöldið hefjast svo 16 manna úrslitin.

Úrslit dagsins:

  • Wesley Plaisier 3-4 Kryzsztof Ratajski
  • Andrew Gilding 1-4 Luke Woodhouse (25)
  • Jonny Clayton (5) 4-3 Niels Zonneveld
  • Andreas Harrysson 4-3 Ricardo Pietreczko
  • Stephen Bunting (4) 3-4 James Hurrell
  • Luke Littler (1) 4-0 Mensur Suljovic



Fleiri fréttir

Sjá meira


×